Húrra, ég er búin með lokaverkefnið! Frábært að fá svona góðan frídag eins og uppstigningardag, þegar maður þarf ekki að vera að gera neitt annað en sinna eigin málum. Reyndar á ég eftir að setja inn nokkrar myndir á sólarvefinn, en Fireworks er eitthvað að stríða mér og það ætlar ekki alveg að ganga eins og það á að gera. Jæja, athuga það betur á morgun... Er alla vega búin að semja allt sem ég ætlaði mér og koma því út á vefinn:)
Ég verð að viðurkenna að útlitshönnunin hefur tekið mestan tíma hjá mér og þó ég hafi reynt að hafa í huga að "less is more" þá hefur stundum verið erfitt að fara eftir því. Mér finnst líka að þegar maður hannar vefi fyrir krakka, þá verði þeir að vera svolítið líflegir, er það ekki? Þess vegna er útlitið á lokaverkefninu hjá mér ekki alveg samræmt og líka af því að ég setti þar inn verkefni sem ég var búin að vinna áður á önninni. Mér finnst ég heilmikið hafa æfst í vefsíðugerð í þessum áfanga og náð alveg sæmilegum tökum á Dreamweaver og Fireworks. Kennslufræðilega færnin er síðan undir manni sjálfum komin, hún kemur með því að vera óhræddur við að prófa alls konar hugmyndir og aðferðir, þá finnur maður hvað reynist vel og hvað ekki. Ég sé að ég kem til með að nota bæði vefrallý og vefleiðangra áfram og trúlega námsumhverfi á vef líka í framtíðinni.
30.5.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli