27.4.08

Gleðilegt sumar

Og takk fyrir veturinn. Ég er reyndar ekki viss um að veturinn sé alveg búinn (heiðin var víst hálfófær í gær) en snjórinn er loksins farinn að gefa aðeins eftir í garðinum mínum. Plássið sem vorlaukarnir hafa á milli skafls og veggjar hefur t.d. stækkað til muna um helgina, þó enn sé að vísu langur vegur í að nokkuð sjáist í krókusana undir trjánum í neðra garðshorninu að utanverðu. Ég vona bara að þeir séu komnir af stað undir snjónum og ef rigningarspáin fyrir vikuna gengur eftir, þá er kannski von um að það sjáist í þá innan tíðar :)

Fór í bíó áðan og sá Brúðgumann í nýenduropnuðu Herðubreiðarbíói. Ákaflega flott mynd fannst mér og skemmtileg. Umhverfið einstakt og tónlistin frábær. Eini gallinn var að talið var stundum óskýrt, hvort sem hljóðvinnslunni var um að kenna eða nýja hljóðkerfinu í Herðubreið. Veit ekki. Hún var samt góð.

Annað skemmtilegt í vikunni var skemmtun kirkjukórsins á sumardaginn fyrsta. Fullur salur af gestum, fjölbreytt skemmtiatriði, eplakaka og kórsöngur. Getur bara ekki klikkað. Ákveðið var að endurtaka leikinn að ári og hafa þá tvö vöfflujárn svo röðin við kaffisöluna gangi hraðar fyrir sig. Því miður steingleymdi ég að taka myndir (sem ég var þó búin að lofa Spánarfaranum að gera) og biðst afsökunar á því. Skal reyna að muna það næst.

En nú þarf ég að klára að fara yfir próf. Vinnudagur á morgun - skyldi heiðin verða fær?

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sælar Bára mín, þú mátt nú alveg stela myndum af síðunni okkar ef þú vilt.

Bára Mjöll sagði...

Takk fyrir það Helga Dögg, kannski ég nappi einni eða tveimur... ég bendi Jóhanni alla vega á að skoða myndirnar þínar :)