Úti í Englandi fylgdumst við aðallega með öndum, gæsum og svönum í garðinum við húsið okkar þar. Hér á Seyðisfirði eru það rjúpur og þrestir sem skemmta okkur með nærveru sinni nú um stundir. Rjúpurnar hafa verið þaulsetnar við runna og tré víða í bænum undanfarið, enda sjálfsagt lítið orðið að hafa uppi í fjalli. Nokkrar þeirra hafa haft nokkuð stöðugt aðsetur við húsið okkar og náði Jóhann þessu myndbandi af þeim fjórum saman hérna um daginn.
Þrestirnir eru tiltölulega nýkomnir og það er greinilegt að þeim finnst kalt. Það snjóar og það snjóar en hitastigið er þó farið að mjakast upp á við. Þessi hér kúrði í lerkitré fyrir utan borðstofugluggann okkar í gær.
Í dag var glampandi sól og indælis veður alveg fram að kaffi. Það var Björnsmót á skíðum og þeir feðgar drifu sig upp í fjall upp úr kl. 10 í morgun. Ég tók því rólega fram að hádegi en fór svo í göngu upp á Bakka hér norðan megin í firðinum. Tók þessa vetrarlegu mynd á leiðinni.En svo virðist sem auglýsing mín eftir vorinu ætli að bera árangur, alla vega hefur Mogginn gefið út að vorið komi á þriðjudaginn. Og ekki lýgur Mogginn...


4 ummæli:
Sæl Bára Mjöll,
já gaman að gera myndasögur aftur, best að setja hljóð á næst :-)
ég held að vorið sé loksins komið í borginni eftir smá flipp hjá veðurguðunum í síðustu viku.
þetta er fínt. nú má sólin bara fara að koma.
hey Bara
How is it going?
Hope everything goes well with you
and your family.
All the photos you took are very very magnificent.
i wish i could live there and enjoy the snowing scenery.
it's getting hotter here in Taiwan now i'm using air-con to cool the room haha
anyway, take care and God bless
Chih-Jen
Takk fyrir að kvitta Helle, hlakka til að skoða fleiri ljósmyndasögur hjá þér - með hljóði!
Sirrý, sólin er búin að vera hér alveg síðan á þriðjudaginn síðasta... allir orðnir kaffibrúnir í framan ;)
Hi Chih-Jen, how nice to hear from you! Everything's fine over here, hope you are doing all right back in Taiwan. Have you got a new blogsite now? We've had a lot of snow this winter but now we believe spring is on its way, at last. Take care my friend.
Skrifa ummæli