Stefán fór með fótboltastrákum til Reyðarfjarðar í morgun og hefur þeim vonandi gengið vandræðalaust að komast yfir heiðina. Ég er strax farin að kvíða því að keyra heiðina tvisvar á dag alla vikuna, hef meira að segja íhugað að athuga hvort hægt væri að fá herbergi á vistinni! En sennilega reyni ég frekar að fá far með flugvallarbílnum. Veðurspáin er nefnilega ekki þessleg að snjógöngin á heiðinni minnki nokkurn skapaðan hlut í vikunni. Bara norðanáttir og frost framundan, sem þýðir skafrenningur og leiðindaskyggni og -færi. Ég lýsi hér með eftir vorinu!!
6.4.08
Ekkert nema snjór

Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

2 ummæli:
Við erum núna stödd í Kópavogi hjá Ingu og hér er alveg kominn vorfílingur, glampandi sól þó golan sé auðvitað ísköld eins og alltaf hérna fyrir sunnan. Við biðjum öll að heilsa ykkur þarna í vetrarríkinu og vonum að það fari að vora fyrir austan sem fyrst.
Kveðja,
Elva, Hannes og Inga
Takk fyrir kveðjur úr Kópavoginum Elva, Hannes og Inga :) Ástandið hefur nú aðeins skánað hér þó enn sé alhvítt yfir að líta og óhætt að segja að vegagerðin hafi unnið stórvirki á heiðinni. Þeir hafa ýtt, blásið burt og troðið niður nánast öll snjógöng meðfram veginum. Já, þeir notuðu meira að segja nýja og flotta snjótroðarann til að hreinlega troða snjóinn niður, algjör snilld! Nú keyrir maður bara yfir á auðum vegi!
Bestu kveðjur í Kópavoginn sem og á aðra staði.
Skrifa ummæli