Kominn 19. maí. Hmm, hef ekki staðið mig vel í blogginu undanfarið. Enda mikið verið um að vera það sem af er mánaðarins og lítill tími til að leika sér á netinu. Best að nota punktakerfið á þetta:1.-19. maí 2008
- Byrjaði á því að leggjast í flensu. Það var ekki gaman. Missti þ.a.l. af námskeiði sem ég var skráð á fyrstu helgina í maí.
- Jóhann kom heim frá Spáni á sunnudeginum.
- Fundarherferð í samvinnu við ÞNA hófst strax eftir helgina. Nokkuð strembin en skemmtileg; fór fyrstu vikuna til Vopnafjarðar, Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar, auk fundar á Egilsstöðum.
- Á sama tíma voru prófin byrjuð í ME. Á minni könnu heilmikil umsýsla fjarprófa bæði okkar nemenda og annarra skóla.
- Stefán kláraði samræmdu prófin á fimmtudeginum. Eftir próf var sprell sem foreldrarnir höfðu skipulagt og undirbúið. Hugsa að þau kunni betur að meta það seinna þegar þau fara að rifja þetta upp... Óvissuferð var farin á föstudagskvöldið; snjósleðaferð, matur á Öldunni, leikhús og að lokum gist í bústað á Einarsstöðum. Tókst bara vel, held ég.
- Hvítasunnan. Kláraði (loksins!) að lesa yfir ritgerðina hennar Gullu. Allir ánægðir með það. Restin af helginni fór í að horfa á vídeó frá námskeiðinu sem ég missti af. Bæði fróðlegt og áhugavert. Er sem sagt enn með á námskeiðinu.
- Prófin héldu áfram svo og fundir, fór á Borgarfjörð eystri. Alveg magnað að koma þangað.
- 10. bekkur bauð foreldrum sínum í mat í skólanum sl. föstudagskvöld. Mjög flott og vel gert hjá þeim.
- Laugardagur 17. maí: 25 ára stúdentsafmæli. Hver hefði trúað því?! Skellti mér í bæinn og átti ótrúlega skemmtilegt kvöld. Kom reyndar ekki heim fyrr en undir morgun... Hitti marga, marga gamla vini og kunningja - bara næstum alla sem ég þekkti í MS - og fleiri til. Hitti m.a.s. Ásgeir og Þórhöllu í stúdentsafmælinu (!) sem var skrítið en skemmtilegt. Gisti hjá Söndru minni og náði aðeins að knúsa þau skötuhjúin og litlu penu kúluna. Takk allir fyrir samveruna og skemmtunina!!
- Í dag var fundur á Seyðisfirði, enginn mætti. Það var súrt en skrifast á reikning ófullnægjandi kynningar. Önnur tilraun verður gerð í næstu viku. Við fengum þó súpu á Öldunni.
- Síðustu menntaskólaprófin voru líka í dag.
Myndin sem fylgir þessari færslu er í boði Vopnafjarðarhrepps og var tekin í fundarferðinni þangað. Tók því miður engar myndir í stúdentsafmælinu en treysti á að það birtist myndir úr samkvæminu einhvers staðar á vefnum. Endilega látið mig vita.


2 ummæli:
Hæ,
gaman að heyra frá þér og til lukku með stúdentsafmælið! Ég á eitt slíkt í júní (10 ára!) og ég er einmitt að skipuleggja óvissuferð fyrir hópinn :/
Bestu kveðjur frá Akureyri
Takk Elva og til hamingju sömuleiðis í júní. Það er mín reynsla að stúdentsafmæli eru alltaf skemmtileg. En ég verð að viðurkenna að það kom á óvart að að sjá pabba þinn allt í einu ganga í salinn! Gaman að þessu. Kærar kveðjur til ykkar allra.
Skrifa ummæli