20.4.08

Fjörðurinn fagri

Sól og blíða. Þannig hefur veðrið verið hér undanfarna daga. Þvílík sæla :) Snjórinn lætur hægt og hægt undan síga en það er samt engin asahláka. Oftast næturfrost. Mamma og pabbi komu austur um helgina og við fórum í bíltúr í morgun út á Vestdalseyri. Röltum um fjöruna, sáum sel og ýmiss konar fugla. Veltum fyrir okkur húsa- og bryggjurústum frá gamalli tíð.

Fórum svo upp í Stafdal þar sem var Austurlandsmót á skíðum og nutum veðurblíðunnar á pallinum við nýja skíðaskálann. Fengum okkur pylsur í hádegismat. Stefán var að vinna sem portavörður, kom svo heim seinnipartinn rjóður og sællegur í andliti og á handleggjum. Við tvö fórum síðan á rúntinn eftir kvöldmat því hann er nýbúinn að fá æfingaleyfið og verður auðvitað að fá að æfa sig.

Jóhann lagði af stað í morgun áleiðis til Spánar þar sem hann ætlar að vera í golfi næstu dagana. Óskum honum og ferðafélögunum góðrar ferðar, en ég verð að segja að hvergi annars staðar en hér hefði ég viljað vera í dag.

1 ummæli:

bjorkhelle sagði...

Gleðilegt sumar!
Sakna stundum fjallana :-)
kær kv Helle