Ég er óskaplega upptekin af íslensku fjöllunum enn þá. Kannski af því að ég er alltaf að keyra yfir heiðina og er þá í svo mikilli nálægð við þau. Og heiðin hefur verið svo ótrúlega falleg undanfarið; skínandi hvít í sólinni á morgnana og að ég tali nú ekki um útsýnið! Í gær þegar ég var á leiðinni heim baðaði síðdegissólin allt Fljótsdalshérað undir Snæfellinu og það var svo fallegt að ég gat varla haft augun af því. Algjör töfrabirta. Mátti ekkert vera að því að horfa á veginn - eins gott að ég kann leiðina næstum því utan að ;) Í morgun þegar ég fór yfir var reyndar sólarlaust en þegar ég fór að nálgast norðurbrúnina þá blasti skjannahvítur toppurinn á Herðubreið við og þar var sko sól. Fjallið var eins og upplýst innan frá, eini bletturinn í augsýn þar sem var sól þá stundina. Ólýsanlegt.Þess má geta að ég er með mynd eftir Stórval á skrifstofunni minni en hún er eins og ókláruð. Það eru tvær raðir af hestum á neðri hlutanum en svo er efri hlutinn galtómur, ekki einu sinni búið að grunna hvað þá meira. Annaðhvort hefur Herðubreið átt að vera þar eða bara þriðja hestaröðin... hver veit? En sú sem fylgir með þessum pistli er auðvitað algjör snilld.


7 ummæli:
Hey Bara
it's good to hear from you
How is everything? I miss you :)
Yeh i won't be able to continue my study in Cambridge but i'm still in UK so i guess we will still meet up in Oct. Faculty on the 15th Oct ? The faculty didn't contact with me about this...erm..
well anyway i hope we can see each other at St Mary's anyway and hang out together afterwards hope to c u soon take care
Til hamingju með daginn í dag, vonandi áttir þú góðan dag, bestu kveðjur úr Fellabænum
Kæra frænka - sólarhring síðbúnar afmæliskveðjur til þín :) vona að þú hafir átt góðan dag með þínu fólki - bestu kv. og knús - Kristbjörg & fjölskylda :)
Hi Daniel - I just wrote on your wall in Facebook and then I noticed your message here. There seems to be a misunderstanding about graduation in the Faculty, but hopefully I'll see you in Great St Mary's on the 13th! And we'll be in touch when I get to Cambridge. Take care.
Takk fyrir afmæliskveðjurnar, elsku Helga Dögg og Kristbjörg. Ég átti mjög góðan dag; fyrst var sungið fyrir mig í vinnunni, svo fékk ég flottan kvöldmat heima og síðan var sungið fyrir mig aftur á kóræfingu um kvöldið. Fullt af knúsum og kossum líka :) Við ætlum að hafa bollur í hádeginu á sunnudaginn fyrir fjölskylduna en mamma og pabbi verða hjá okkur um helgina.
Erum svo að fara til Cambridge í útskrift um næstu helgi þannig að það er ógurlega mikið að gera hjá mér - en reyni kannski að blogga smá áður en við förum.
Bestu kveðjur til allra og hafið það gott.
Bára Mjöll
Elsku frænka!
Innilega til hamingju með afmælið um daginn og til hamingju með útskriftina næstu helgi.
Bestu kveðjur frá okkur Hannesi.
Ji já, það er útskriftin þín ;)
flott að heyra og hamingjuóskir með það líka ;)
bestu kv. Kristbjörg & co :)
ps. ef þið eigið lausa stund í höfuðborginni á leiðinni út eða til baka eruð þið velkomin að kíkja ;)
Elsku Bára Mjöll.
Til hamingju með útskriftina og einnig afmælið um daginn.
Mér var einmitt hugsað til þín þá en ég var þá stödd í Chicago og ekki með síma á mér til að senda þér SMS.
En enn og aftur bestu kveðjur til þín.
Inga.
Skrifa ummæli