Já, við drifum okkur út til Cambridge til að vera við útskriftarathöfn. (Takk kærlega fyrir allar hamingjuóskirnar og -kveðjurnar :) Mér fannst það alveg nauðsynlegt bæði til að ljúka náminu mínu formlega og eins til að setja punkt á eftir dvölinni þar. Útskriftarathöfnin er ein elsta hefðin sem enn er viðhaldið í Cambridgeháskóla; strangar reglur gilda um fatnað, allt fer fram á latínu og samkvæmt aldagömlum venjum. Það var mjög hátíðlegt og sérstakt að taka þátt í því. Síðan var auðvitað líka gaman að koma aftur til Cambridge og hitta Nínu og Paul, en við verðum örugglega mjög reglulegir gestir hjá þeim héðan í frá.Við Chih-Jen (eða Daniel) frá Taiwan sem er með mér á myndinni, vorum bara tvö úr hópnum mínum sem útskrifuðumst núna en ég hitti líka Lijun kínversku vinkonu mína, þó hún kæmist ekki í athöfnina. Hún útskrifast í nóvember sennilega ásamt Shuo sem er líka frá Kína, en ég veit ekkert um kýpversku Mariu - þarf endilega að hafa uppi á henni.
Það er ekki víst að hér verði mikið bloggað á næstunni vegna anna. Samt er aldrei að vita ef eitthvað skemmtilegt gerist. Er t.d. að fara í dag á samæfingu á Requiem eftir Fauré sem verður flutt á Akureyri um næstu helgi og svo hér fyrir austan fyrstu helgina í nóvember. Sjáumst kannski þá!


7 ummæli:
Blessuð og sæl og til hamingju með útskriftina.Kær kveðja Alda
Sæl Bára mín, til hamingju með áfangann, bestu kveðjur úr Fellabænum
Til lukku með útskrift - sjáumst v/ tækifæri...
Til hamingju með útskriftina! Verst að við skildum ekki hittast um helgina, en vonandi verður bætt úr því við tækifæri.
Bestu kveðjur austur.
Sæl kæra vinkona.
Sendi þér innilegar hamingjuóskir með prófið og dvölina í heild í UK.
Gangi þér sem allra best í nýja starfinu þínu.
Megi heill og hamingja fylgja þér.
Kveðja, Dagmar.
Kærar þakkir þið öll sem hafið sent mér kveðjur og hamingjuóskir :) og takk fyrir að kvitta og kommenta á síðuna mína á meðan við vorum úti. En nú er ég allt í einu komin í alveg botnlausa vinnu og því óvíst hve mikið verður bloggað hér næstu mánuði. Aldrei að vita samt nema einu og einu bloggi verið hent inn... Hafið það gott!
BMJ.
Hey Bara,
how is your life back to Iceland?
I like the picture that you posted
tho i only understand you said something that my name is chih-jen and i'm from Taiwan. haha that's all i can guess. Thank you for coming back and graduating with me so i didn't feel that lonely and i can always remember that we graduated at the same day (pls allow me to sneak the photo of you and me hehe :p)
I just randomly read a website about Iceland
http://tw.lifestyle.yahoo.com/182b5b4e/061016/5/3lai9/0.html
it's written in Chinese but there are few photos with it. The Icemotorcycling thing is so awesome i wish i could go visit you now Bara and also it says ppl can see northern lights in iceland wow i always wanted to see that as well anyway, i hope we can meet up again soon haha hope you are well and God bless :)
take care my good friend
Skrifa ummæli