Heldur finnst mér veturinn minna snemma á sig núna strax um miðjan september. Það hefur verið snjór á heiðinni í tæpa viku, stundum hálka og meira að segja renningur af og til - og allir á sumardekkjum auðvitað. En þegar ég fór heim í dag var vegurinn orðinn auður, enda glampandi sól allan daginn. Ég heyrði svo áðan í veðurfréttunum að það á að vera hlýjast Austanlands á morgun, þannig að ég slepp vonandi við hálkuna í fyrramálið.
Svo verð ég að skella hér myndum frá gríðarskemmtilegri samkomu sem ég fór á um helgina. Þannig var að karlkyns félagar í Golfklúbbi Seyðisfjarðar voru með sérstaka "Lávarðaleika" á laugardaginn og borðuðu síðan saman inni í golfskála eftir mótið. Þetta hefur verið fastur liður hjá þeim í nokkur ár og harðneita konum um aðgang! Svo sem allt í lagi með það, nema bara að okkur konunum leiðist á meðan og því kom upp sú frábæra hugmynd að við borðuðum saman á hótelinu þetta kvöld.
Það varð úr og var Hrönn Óla svo yndisleg að bjóða okkur í drykk heima hjá sér fyrir matinn. Síðan fórum við á Hótel Ölduna og fengum þennan dýrindis sex rétta málsverð sem tók ekki minna en þrjá klukkutíma að borða. Við vorum meira að segja enn að borða þegar kallarnir fóru að tínast út í bæ um klukkan hálf tólf. Þetta var ótrúlega gaman og verður vonandi endurtekið að ári. Það eina sem ég sé eftir er að hafa ekki farið á Todmobile ballið á eftir... klikka sko ekki á því næst!Lifið heil.


6 ummæli:
Blessuð öllsömul,og velkomin til Íslands.Ég vissi nú af ykkur í Mývatnssveit þarna um daginn, en!!. Gott að sjá að þér líkar vel í nýju vinnunni. Gangi þér vel með það.Kveðjur frá Húsavík. Alda
Ekki ertu öfundsverð Bára Mjöll mín af því að keyra svona á milli að vetri til ;)
Ég þakka bara fyrir að þurfa ekki að fara nema rétt í götuna f. ofan okkur svo og þar rétt hjá til að sækja heimasætuna hehe :)
Það blæs ansi kalt núna í Kópavoginum finnst mér :( - en það er hlýtt í Köben sagði mamma mér - en þær eru þar núna hún, Guðrún Lára, Gróa, Jóna og Bogga í tilefni af 40 ára afmæli Guðrúnar L. n.k. mánudag - skvísast bara í Köben og þræða veitingahúsin í hlýjunni hehe ;)
Bestu kv. Kristbjörg í köldum Kópavogi ;)
Takk fyrir kveðjurnar, Alda mín og Kristbjörg :)
Já, það getur tekið á að keyra þessa heiði tvisvar á dag, en reyndar eru líka rútuferðir sem maður þyrfti að vera duglegri að nýta sér.
Ferlega held ég að það sé gaman hjá þeim skvísunum í Köbenhavn, alveg frábært hjá þeim að drífa sig. Og afmæliskveðjur til Guðrúnar Láru auðvitað!
Bestu kveðjur úr snjó og hálku á Fjarðarheiði...
hæ Bára Mjöll!
Langt síðan ég hef kíkt hér inn, maður er hálf fatlaður þegar maður er ekki með sína eigin tölvu og þarf að sníkjast í hinar og þessar tölvur til að kíkja í tölvupóstinn sinn og svoleiðis.
Gangi þér vel að keyra á milli og vonandi verður veturinn góður.
Kveðja af Eyrinni.
Sæl og blessud Bara
Eg var ad heyra ad tid fjølskyldan yrdud stødd i Englandi helgina 12-14, er eithvad til i tvi? Eg a nefnilega pantad far tangad um tessa helgi!
Hæ Elva mín, gaman að þú skyldir kíkja :) En hvenær ætli maður sjái ykkur í eigin persónu?! Við eigum leið um eftir tæpar tvær vikur, kannski það verði þá...? Alla vega þig, fyrst Hannes verður aftur farinn til Eyjaálfu.
Og sæll Jón Kolbeinn, mikið rétt við verðum Englandi akkúrat þessa sömu helgi. Fyndið að það skyldi hittast svona á, en ég er (vonandi) að fara að útskrifast þann 13. Sjáumst í Cambridge!
Skrifa ummæli