1.9.07

Hefur þú séð bláberjasultu?!

Við hjónin skruppum í bláber um síðustu helgi og tíndum 2 lítra sem í dag urðu að 4 krukkum af sultu og rúmlega hálfri flösku af saft. Það var reyndar ekki á dagskrá að gera saft, en þennan rétt rúma mánuð síðan við komum heim hafa bara ekki safnast fleiri krukkur hjá okkur og því var einfaldlega ekki hægt að gera meiri sultu. En saftin á vonandi eftir að smakkast vel og bóndinn hefur lofað morgunmat í rúmið í fyrramálið: kaffi og ristuðu brauði með osti og bláberjasultu :)

En hvað fleira síðan síðast?

Jú, Eivör var náttúrlega alveg yndisleg í Skóginum þar sem var hlýtt og gott að vera þennan sunnudagseftirmiðdag. Og hún heillaði tónleikagesti upp úr skónum með einlægni sinni og ótrúlegum hæfileikum. Ég keypti nýja diskinn hennar eftir tónleikana og hann er frábær, mæli með honum.

Um síðustu helgi skruppum við svo í bíltúr upp að Kárahnjúkum til að skoða Hálslón. Á leiðinni komum við að rútuslysinu í Bessastaðabrekku og ég verð að segja að þeir voru mjög heppnir að ekki fór verr. En hjálp var á leiðinni og við gátum ekkert gert svo við héldum bara áfram. Stíflan stóra sem við sáum í fyrrasumar er næstum horfin ofan í vatnið og sést bara í smárönd efst. Lónið sjálft virðist ekki vera svo mikið frá útsýnisstaðnum séð en það teygir sig eina 25 km til suðurs að Vatnajökli sem er nú ekkert smáræði. Við hittum þessa sætu stráka á bílastæðinu og lífguðu þeir heilmikið upp á umhverfið!

Í dag var jarðarför hér í Seyðisfjarðarkirkju og fór ég að syngja með kirkjukórnum. Það var gott að koma aftur í kórinn og ekki spillti að organistinn á prýðis fiðluleikara fyrir mann og fékk hann til að spila með í nokkrum sálmanna. Fyrsta messan eftir sumarfrí verður strax um næstu helgi og hlakka ég mikið til að vera með í kórnum í vetur, ég saknaði þess í Englandi að vera ekki í kór.

Svo fór ég að búa til sultuna þegar ég kom heim, mmm hvað ég hlakka til að vakna í fyrramálið... ;)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

MMMm sultan lítur vel út :)

Bára Mjöll sagði...

Já, takk :) Hún smakkast líka ágætlega - hefði kannski mátt vera aðeins sætari, man það bara næst...