Svona er nú skemmtilegt veður hjá okkur í dag; rigning og þokuský niður í miðjar hlíðar. Kaldur norðanvindur þó mælirinn sýni 9,3°C - hann hlýtur að vera vitlaus?! Var að koma úr messu, sem var ljúft, og smellti af með símanum rétt áður en ég hoppaði inn í bílinn. Presturinn stendur meira að segja enn á tröppunum.Veðrið hefur annars verið með besta móti undanfarið og ekki mjög haustlegt fyrr en í dag. Það gengur vel að keyra fram og til baka yfir heiðina á hverjum degi enda sumarfæri enn þá... Það eina sem truflar eru miklar framkvæmdir á leiðinni - varla hægt að minnast á þær ógrátandi.
Ótrúlega mikið að gera í vinnunni þessa vikuna og enn er margt nýtt að læra. Ég prófaði t.d. í fyrsta sinn að setja upp fjarfund á milli nokkurra staða og að passa upp á að allar tengingar væru í lagi á meðan á honum stóð. Held að það hafi heppnast bærilega. Þetta er ótrúlega sniðug tækni og virkar bara mjög vel!
En nú er best að hvíla sig og hlaða batteríin fyrir átök næstu viku. Þetta er svona dagur til að kúra sig undir teppi með góða bók og það ætla ég að gera.


2 ummæli:
Þú veist að það er laust rúm hjá okkur ef þú skyldir nú verða veðurteppt einhvern tímann í vetur :)
Takk fyrir það Helga mín. Það er gott að vita af því en vonandi á eftir að ganga vel að komast á milli. Ég fékk t.d. að fara fyrr heim á fimmtudaginn þegar spáin var svo leiðinleg og slapp við það versta, þó færið hafi nú ekki verið gott fyrir bíla á sumardekkjum...
Bestu kveðjur!
Skrifa ummæli