19.8.07

Sunnudagsmorgunn

Það er sunnudagsmorgunn og sólin hún situr við borðið... Ja, kannski ekki alveg, en hún er ábyggilega á leiðinni. Eins og sést á meðfylgjandi mynd sem ég tók út um dyrnar hjá mér rétt áðan, þá liggur þokan í fjallshlíðunum en það er bjart yfir og sólin hlýtur að hafa betur. Hún gerir það alltaf á endanum.

Stefán er farinn á fótboltaæfingu og Jóhann er að keppa á golfmóti á Ekkjufellsvelli í Fellabæ (örugglega engin þoka þar). Reyndar er ég líka að fara upp á Hérað á eftir, við tengdamamma ætlum að fara á tónleika með Eivöru í Skóginum!

Það er nefnilega Hallormsstaðadagur í dag á Ormsteiti.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ,
takk fyrir síðast, maður verður að halda áfram að lesa bloggið og kvitta fyrir lesturinn :) Bestu kveðjur Helga Dögg

Bára Mjöll sagði...

Æ takk fyrir það Helga mín, maður virðist ekki vera nærri eins spennandi eftir heimkomuna ;) þannig að það er gott að vita að einhver er enn að lesa! Vorum að spá í að heimsækja ykkur á morgun, verðið þið heima upp úr hádeginu?

Nafnlaus sagði...

hehe - jú jú Bára Mjöll mín - alltaf gaman að frétta af ykkur. Ég hef bara verið svo andlaus undanfarið - öll mín orka farið í undirbúning kennslu 1.bekkjar, vera með dömunni og allt það tilheyrandi, skrifa ekki mikið né les mikið sjálf þessa dagana :)

vonandi heyrumst við samt fyrr en síðar -
bestu kveðjur - Kristbjörg kennari :)

Nafnlaus sagði...

bara skilja eftir mig spor... :)

Elva sagði...

hae ho!
Allt gott ad fretta fra Sydney, eigum pantad flug nordur fyrir midbaug a morgun og vid hlokkum mikid til :)

Bestu kvedjur!

Bára Mjöll sagði...

Takk fyrir að kvitta stelpur mínar :)

Ég er reyndar ekki mikið á netinu sjálf þessa dagana, nóg að gera í nýju vinnunni og svo er ég að kenna smá í yfirvinnu þannig að sá undirbúningur fer fram á kvöldin... en það hlýtur að lagast þegar á líður.

Vona að ferðalagið gangi vel hjá ykkur Elva og Hannes, og að við hittumst fyrr en síðar.

Bestu kveðjur út í alheiminn.