25.6.07

Skrifa, skrifa...

Nú er bókstaflega ekkert að frétta nema af ritgerðarsmíð- inni. Hef setið við alla helgina eins og aðra daga og sendi leiðsögukennaranum mínum í dag skjal upp á tæp 12 þúsund orð. Það þýðir að ég er búin með um tvo þriðju og ekki nema ca. 6 þúsund orð eftir! Það er náttúrlega bara lítilræði miðað við allt sem ég er búin að skrifa í vetur... Ég hef einsett mér að vera búin eftir tvær vikur og það skal takast. Það eina sem við gerðum annað um helgina var að fara tvisvar út að borða, á föstudagskvöldið á pöbb hérna rétt hjá og á laugardagskvöldið með Paul og Ben á Dojo núðlustað sem er hérna enn nær. Nína hefur verið í góða veðrinu á Íslandi en kom heim í gær. Veðrið hér hefur verið heldur leiðinlegt og mikið rignt, þó ekki jafnmikið og sums staðar annars staðar í landinu þar sem allt hefur farið á flot trekk í trekk í einum úrkomusamasta júnímánuði sem mælst hefur. En úr þessu getur ekki annað verið en að það fari að skána. Ég er samt ekki að kvarta, það er bara ósköp notalegt að vera inni að skrifa á meðan regnið lemur rúðurnar ;)

Hafið það gott.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Fínt hjá þér að vera búin með tvo þriðju og frábært ef þér tekst að ljúka ritgerðinni eftir tvær vikur.
Við vorum við jarðarför Benna á Hömrum í dag. Geysifjölmenn og falleg athöfn í glaðasólskini. Mamma þín flutti fjölskyldunni kveðju þína og þau báðu fyrir kveðjur til þín.
Spáð er norðanáttum á morgun og hinn og erum við að vonast til að fá vökvun fyrir gróðurinn áður en hlýnar aftur og sólin fer að skína væntanlega á fimmtudaginn.
Bestu kveðjur frá mömmu og pabba.

Elva sagði...

Sæl frænka!
Gaman að heyra hvað ritgerðin gengur vel hjá þér. Ég vona samt að þú sért ekki að skrifa ritgerðina í skrifblokkina sem er þarna á borðinu á myndinni (c;

Kærar kveðjur frá Nýja-Sjálandi

Bára Mjöll sagði...

Já, það verður mikill léttir að klára þessa lokaritgerð (þó mér finnist ekkert leiðinlegt að skrifa hana) og vonandi næ ég smáfríi hérna áður en við förum heim. Takk fyrir kveðjurnar frá Hömrum, ég hugsaði til þeirra í gær.

Nei Elva, ég er nú ekki að skrifa ritgerðina í þessa skrifblokk heldur á fartölvuna ;) en skrái samt hjá mér punkta í bókina um það sem ég les. Myndin er reyndar frá því í haust en lýsir samt ágætlega ástandinu á skrifborðinu mínu þessa stundina.

Bestu kveðjur til Mývetninga nær og fjær, afganginn fá allir sem ég þekki...

Nafnlaus sagði...

Endalausar baráttukveðjur til þín Bára Mjöll mín með ritgerðarvinnuna ;)
Ég var að velta því fyrir mér um daginn að nú höfum við verið í meira sambandi svona via netið og bloggið heldur en undanfarin ár - hehe :) það væri því voða gaman að viðhalda þessu eftir að þú kemur heim - svona fyrst að netið virkar líka vel milli staða á Íslandi heeh :)

Bestu kveðjur til ykkar -
Kristbjörg & co.
ps. Guðrún Lára er í orlofi hjá mömmu þinni og pabba núna þessa vikuna og líkar víst ljómandi vel ;)

Bára Mjöll sagði...

Endalaust takk Kristbjörg mín fyrir allar baráttukveðjurnar ;) Já, það er satt, við höfum ekki haft svona mikið samband síðan kannski bara þegar við skrifuðumst á hérna í denn! Og mikið rétt, netið virkar líka vel á milli staða á Íslandi og um að gera að halda áfram að vera í sambandi eftir að við komum heim. Ég var búin að frétta af Guðrúnu Láru fyrir norðan og heyrði að hún hefði það bara gott í sveitinni. Vona að þið hafið það líka gott,
bestu kveðjur til þín og þinna frá Cambridge :)

Nafnlaus sagði...

Glæsilegt hjá þér Bára Mjöll, þú lætur ekki deigan síga, ef ég þekki þig rétt. Við vorum að koma úr Reykjavík, afmæli og jarðarför (ekkert brúðkaup). Hálf hefur nú verið kalt og vetrarlegt hjá okkur síðustu dagana. Meira að segja krapi á Heiðinni í gær. Kveðjur til allra.
Ólafía

Nafnlaus sagði...

Sælar, komst í tölvu og mátti til með að kíkja á þig. Erum í Hafnarfirðinum núna hjá pabba, biðjum að heilsa, Helga Dögg og strákarnir