
Þessa dagana snýst lífið hjá mér að mestu um lokaritgerðina og lítið annað sem kemst að. Það fór samt ekki framhjá mér frekar en öðrum að nýtt
merki fyrir Ólympíuleikana í London 2012 var kynnt nýlega. Þetta merki hefur vægast sagt fengið lélegar móttökur og meira að segja verið fullyrt að fólk geti fengið flog af því að horfa á hreyfimyndaútgáfuna! Mér fannst það alveg skelfilegt fyrst en er aðeins farin að venjast því núna.
Sorgarfréttir af svanafjölskyldunni - ég veit varla hvort ég ætti að vera að skrifa þetta hérna - en nú virðist bara vera einn ungi eftir :(
Svona er lífið...
10 ummæli:
Sagan ein mun skera úr um hvort þetta merki er "gott" eða ekki - ég er hins vegar ekki mjög bjartsýnn fyrir þess hönd...
Ég sé bara dónamynd út úr því!
Leitt með ungana :(
Í þokkabót kostaði 400 þúsund pund að hanna merkið (reyndar með hreyfimyndaútgáfunni) sem var ekki til að bæta það og nú rignir 'ódýrum' hugmyndum yfir BBC frá fólki út í bæ. Spurning hvort þeir halda þetta út til 2012... en Elva, hvernig sérð þú dónamynd út úr því!?
Já Helga Dögg, við ætluðum varla að trúa því þegar við sáum parið núna síðast bara með einn unga, þeir voru orðnir það stórir. En því miður þá var ekki um að villast :(
Hafið það gott elskurnar...
Ég sé bara tvær manneskjur, önnur krýpur á kné fyrir framan hina. Ég segi ekki meir!
Þetta er afar nýtískulegt merki og ekki fallegt að mínu mati, og er sammála Pálma að það verður ekki langlíft. Sennilega eiga þetta að vera tvær manneskjur en ég get ekki séð neitt dónalegt við þær, hvernig sem ég reyni. Mér finnst að mörgu leyti merkið minna á gamla merki Fósturfélagsins nema pönkaðri útfærsla.
Blíðan hér í firðinum fagra-kv. Ólafía
Ok Elva, ég held að ég sjái þetta núna... (hefði ekki átt að spyrja) en núna fatta ég loksins punktinn í miðjunni ;)
Fósturfélagið segirðu Ólafía, já kannski - annars á þetta að vera ártalið 2012...!
Sæl Bára Mjöll mín og þið öll.
Voða langt síðan ég hef kíkt á síðuna þína,bara ekki í 4 - 6 vikur held ég.
Já, ég trúi að þú finnir til með svanafjölskyldunni.
Já þetta merki heillar mig ekki.
Njótið dvalarinnar og bestu kveðjur.
æ æ leiðinlegt að lesa um svanafjölskylduna :(
bestu kveðjur að sinni - Kristbjörg & co ;)
Sælar báðar Ásdís og Kristbjörg, takk fyrir innlitið og kveðjurnar :)
Já, við erum búin að vera í hálfgerðu sjokki út af þessari blessuðu svanafjölskyldu en svona getur þetta víst verið í náttúrunni. Vonandi gengur betur hjá þeim næst.
Kærar kveðjur.
Skrifa ummæli