En við skruppum í göngutúr í gærkveldi á milli skúra og festum fugla-, dýra- og mannlífið í garðinum okkar á "filmu":
Það fór eins og maðurinn spáði, svarti svanurinn Georg náði ekki að unga út og nú er hreiðrið tómt og yfirgefið.
...eins og sést á þessari mynd. En hér eru tíðindi vikunnar; hvítur svanur (ungalaus) í slagtogi með svörtum svani! Þetta höfum við ekki séð fyrr hér á ánni.
Og að lokum gæsafjölskylda með fjóra unga. Þeim virðist ganga mun betur en svönunum að passa upp á ungana sína og höfum við ekki orðið vör við nein afföll hjá þeim þremur gæsafjölskyldum sem búa hér í nágrenninu.Þeir feðgar brugðu sér á Duxford Imperial War Museum í dag á meðan ég þóttist vera heima að læra og fóru þar m.a. um borð í Concorde. Á morgun erum við svo öll að fara í 17. júní partý hjá Bjarka og Bryndísi þar sem grillaðar íslenskar "pulsur" verða í boði og sungið verður Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei, það er kominn 17. júní. Við erum að hugsa um að labba þangað í skrúðgöngu með Stefán í fararbroddi spilandi á saxófóninn Allir dansa kónga. Björn og Regína ætla jafnvel að slást í hópinn. Annars eru þau að flytja heim í næstu viku og við kveðjum þau með söknuði um leið og við óskum þeim alls hins besta á Ísalandinu góða.





9 ummæli:
hæ hó jibbýjei! Það er kominn 17. júní hérna megin. Hannes í vinnunni og ég í fríi að láta mér leiðast. Fer svo á starfsmannafund kl. 18:00 í kvöld.
Ekki mikill þjóðhátíðarstemmari í ár.
Ég sendi þér góða læri-, lestrar- og skrifstrauma!!
Bestu kveðjur (c:
Sæl Bára
Gleðilega þjóðhátíðardag í dag og til hamingju með daginn í gær :) Er búin að setja fullt af myndum inn á síðuna hjá strákunum frá gærdeginum, endilega kíkið. Þetta var sko dagurinn hans afa í gær, var gaman að fylgjast með honum og Guðna frænda segja gestum frá hinu og þessu. Svo var grillveisla í Botnahlíðinni í gær, vantaði bara ykkur og Paul. Bestu kveðjur úr Fellabænum
Takk fyrir straumana Elva mín, reyni að senda ykkur 'þjóðhátíðar'strauma í staðinn ;)
Rosa skemmtilegar myndirnar þínar Helga Dögg, verst að hafa ekki getað verið með ykkur. En Nína hefur vonandi kysst alla voða vel frá okkur - hún var með fyrirmæli um það!
Gleðilega þjóðhátíð öll sömul.
Tek undir með Helgu Dögg, það vantaði ykkur í gær. Sannarlega góður dagur. Hér var hátíðarstemmning í dag, lúðrasveit á vörubílspalli, fallbyssuskot o.s.frv.
kveðjur úr Botnahlíðinni
Ólafía
Hér svikum við lit mæðgurnar - bæði í kvennahlaupinu og svo í hefðbundnum hátíðarhöldum í gær hehe ;) litla fjölskyldan fór bara í Grímsnesið í bústaðinn okkar og þar skemmti heimasætan sér mjög vel og naut þess að vera úti að vild, borða vel og ekki sofna fyrr en kl. 22.00 bæði kvöldin sem við vorum þarna (enda foreldrarnir einstaklega skemmtilegir ;) )
Tökum þetta bara með tropmpi næsta sumar - hehe ;)
baráttukveðjur með ritgerðina
kv. Kristbjörg & co ; )
Við segjum það sama, verðum bara með næst - 17. júní kemur alltaf aftur og kvennahlaupið o.s.frv. Vonum samt að 100 ára afmælissýning Vjelasmiðju Jóhanns Hanssonar verði enn opin þegar við komum heim því hún verður kannski ekki endurtekin...
vaaaá hvað stefán er orðinn stór!! haha. snilld.
gangi þér annars bara vel með ritgerðina þína og flutninginn heim. ég veit um eina litla söndru sem verður fegin að fá mömmu sína heim ;)
Það er víst of seint að bjóða gleðilega þjóðhátíð :) en í dag var
lengsti dagur ársins og afmæli Illuga
Más. Grillað í kvöld í tilefni af því
Alltaf flottar myndirnar þínar og skemmtilegar frásagnir af lífinu hjá ykkur. Talandi um hreiður og unga
- við Helgi James gengum varpið í Prestmýri og nágrenni í gær og komum
heim með 124 egg!! Vorum báðir strák-
arnir ánægðir með það.
Bestu kveðjur frá pabba og mömmu.
Takk Sirrý mín, við verðum líka glöð að koma heim og knúsa Söndru 'litlu', höfum ekki séð hana núna í bráðum hálft ár! (ja, nema á Skype...)
Já, ég mundi eftir afmælinu hans Illuga Más og sendi kveðju inn á msn til hans, vona að hann hafi séð það. Aldeilis fínt varp í Prestmýrinni núna, mun betra en þegar við gengum hana í fyrra ef ég man rétt!
Takk fyrir kveðjurnar og bestu kveðjur til ykkar allra sömuleiðis :)
Skrifa ummæli