25.3.07

Sumartími

Það er eiginlega sumardagurinn fyrsti hér í dag, alla vega segir Paul að þegar búið sé að skipta yfir á sumartímann þá sé sumarið byrjað (alveg sama hvernig veðrið er, rétt eins og á Íslandi). Og það var sem sé gert kl. 2 í nótt. Reyndar má segja að vorið hafi verið á "hold" alla síðustu viku því hér hefur verið kalt heimskautsloft með næturfrosti og snjóaði m.a.s. aðeins þó ekki hafi fest á jörð. En í dag hlýnaði heldur og sólin var ekki langt undan, held að hitinn hafi farið í svona 13-14 stig. Við löbbuðum í bæinn og brugðum okkur upp í háan kirkjuturn (sjá efstu myndina) til að líta yfir borgina. Þetta er eini möguleikinn til þess því landslagið er svo flatt. Með- fylgjandi myndir eru úr þessu ferðalagi.

Ætlum að hitta Nínu og Paul á eftir á The Green Man í Grant- chester til að halda upp á daginn.

5 ummæli:

Elva sagði...

Gleðilegt sumar!!!

Samkvæmt þessu þá er veturinn kominn hér á Nýja-Sjálandi. Hér var skipt yfir á vetrartímann fyrir viku síðan. En ég ætla að berjast á móti enn um sinn. Það er ennþá fínasta veður svo ég neita að veturinn sé genginn í garð ;o)

Bára Mjöll sagði...

Rétt Elva! Auðvitað fer veðrið ekkert endilega eftir dagatalinu og um að gera að njóta á meðan það er gott :) Bestu kveðjur til NZ.

Nafnlaus sagði...

Sæl Bára, takk fyrir kveðjuna á síðuna hjá strákunum. Er Paul kannski kominn í stuttbuxurnar sínar? Það er komið sumar þegar hann er kominn í þær :) Hér er voða vorlegt, krakkarnir alveg á fullu eftir leikskóla að hjóla um alla götuna hér, svaka mikið fjör :) Bestu kveðjur frá okkur úr Fellabænum, HDT

Guðrún Lísbet sagði...

Kvedja fra Singapore, bara svona til ad benda ykkur a ad thad er lika frabaert utsyni a 10.haed a Addenbrookes, svona ef thid erud i thannig studi;)

Bára Mjöll sagði...

Helga; Paul var reyndar ekki kominn í stuttbuxurnar síðast þegar ég sá hann. Það er líka sennilega ekki eins hlýtt hér núna eins og hjá ykkur... Bestu kveðjur í Fellabæ.

Takk fyrir ábendinguna Guðrún, við höfum (sem betur fer) fram að þessu ekkert þurft að heimsækja Addenbrookes spítala en maður veit aldrei ;) Hafið það gott og bestu kveðjur.