4.3.07

Blóðmáni

Við vorum svo heppin að geta fylgst með tunglmyrkvanum sem varð í gærkveldi, þegar jörðin fór á milli sólar og tungls. Það var alveg magnað en því miður dugði litla myndavélin okkar ekki til að ná mynd af fyrirbærinu :( Bendi því á Wasington Post sem birtir fína mynd og grein um myrkvann. Fyrst sáum við skugga byrja að færast yfir tunglið og þegar hann var kominn alla leið þá varð tunglið koparlitað eða appelsínugult. Þetta kallast 'bloodmoon' eða blóðmáni og þótti í gamla daga vera heldur slæmur fyrirboði. Í dag njótum við þess bara að horfa á og kærum okkur kollótt um hugsanlegar afleiðingar...

Skelli hér mynd sem ég tók í vikunni af páskaliljum í garðinum hér við blokkirnar. Ef vel er gáð má sjá að runninn á bak við er að byrja að laufgast. Sumum (Nínu) finnst þetta nú allt of snemmt því enn er jú rúmur mánuður til páska. Vorum annars í mat hjá þeim í gær og fengum þennan líka fína fisk frá Asda og alveg geggjað grænmeti. Takk fyrir okkur :)

Fyrir utan það er lítið að frétta, lífið gengur sinn vanagang og bara endalaus ritgerðarskrif og lærdómur hjá mér. Nú eru ekki nema tæpar tvær vikur þangað til ég á að skila, þannig að ég er aðeins farin að stressast. Þeir feðgar eru að búa sig undir að fara á fótboltaleik helgarinnar en ég verð auðvitað heima að læra.

Bless í bili.

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hér er líka vorlegt, sólin skín og þó nokkur snjór. Það rigndi í gær en vonandi verður snjórinn á hægu undanhaldi alla vega fram að páskum. Feðgarnir fóru á skíði en ég er í veikindafríi og má ekkert gera. Förum um næstu helgi til Jóns Kolbeins, það verður gaman fyrir okkur gamla settið að fara á kunnuglegar slóðir eftir tæp 20 ár.
Kveðjur til allra.
Ólafía

Nafnlaus sagði...

hæhæ,
ég fór inn á Washington Post og las greinina. Sá þar að við fáum fremstu sætin í næsta skipti sem tunglmyrkvi verður, eða 28. ágúst. Best að setja það inn í reminderinn svo maður muni eftir því að horfa til himins það kvöld!

Bára Mjöll sagði...

Farðu vel með þig Ólafía mín og hafið það gott í Danmörku. Það verður örugglega skemmtilegt fyrir ykkur að rifja upp gamla tíma!

Elva, um að gera að kíkja á tunglmyrkvann í ágúst. Pabbi sagði að hann hefði séð myrkvann í Mývatnssveit en annars hefði verið skýjað að mestu á Íslandi.

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ.
við erum að fara að leggja í hann suður og svo til DK. Óskum Stefáni innilega til hamingju með afmælið á morgun, verst að geta ekki skroppið í afmæliskaffi. Kveðjur til allra. Ólafía

Elva sagði...

Hér er kominn 9. mars. Bestu kveðjur til afmælisstráksins.

Bára Mjöll sagði...

Takk fyrir afmæliskveðjurnar :) Hér var þessi fína súkkulaðikaka o.fl. í boði Asda með kaffinu, vantaði bara gestina...

Thorarinn sagði...

Bestu afmæliskveðjur frá okkur líka. Við feðgarnir erum á Goðamótinu þessa helgi, mikil spenna og góð úrslit í fyrsta leik; 2-2 gegn Fylki.

Elva, þú ættir kannski frekar að nota þessa aðferð við "baksturinn"...? ;-)

ES Missti af tunglmyrkvanum í þetta sinn, var í Reykjavík...

Nafnlaus sagði...

HAHAHAHA! Takk Pálmi minn :) Verst hvað bakaríin eru leiðinleg og tilbreytingarlaus hérna á NZ.