19.3.07

Mánudagur - og páskafrí?!

Skilaði ritgerðinni á tilsettum tíma á föstudaginn og mikið var það góð tilfinning :) Ég hafði ekki verið sérlega ánægð með hana en leiðsögukennarinn minn sagði: "I'm sure it's better than you think" og ég ákvað bara að taka hana á orðinu og vona svo það besta. Einkunnin kemur varla fyrr en í maí og óþarfi að hafa áhyggjur af því strax. Nú er kennslu lokið á þessari önn og aðeins örfáir tímar áætlaðir á sumarönninni sem hefst seint í apríl. En það þýðir samt ekki að ég sé næstum því búin. Nei, ónei. Nú er lokaverkefnið eftir, sem er rannsókn og ritgerð upp á 20 þúsund orð takk fyrir, á meðan ritgerðir 1 og 2 hafa ekki verið "nema" 6000-6500 orð. Ég er búin að fá loforð frá Comberton Village College um að ég megi gera rannsóknina þar, en ég ætla að skoða hvernig þau hafa fellt tölvu-og upplýsingatækni inn í tungumálakennslu og hvaða áhrif það hefur haft á nám og kennslu. Fínt að geta bara einbeitt sér að þessu en ekki dugar annað en að byrja undirbúningsvinnuna annaðhvort núna eða strax!

Helgin var róleg enda hálfgert spennufall í gangi - fórum í göngutúr í bæinn á laugardag og í bíltúr út í sveit í gær. Nú er verið að spá smá kuldakasti hérna (hóta jafnvel snjókomu) en það er samt vor í lofti eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem voru teknar í gönguferðinni á laugardaginn. Athugið að það er hægt að smella á myndirnar til að stækka þær.
Páskaliljurnar við árbakkann í garðinum okkar. Stofuglugginn okkar er efst til hægri í blokkinni vinstra megin á myndinni.

Svarti svanurinn sem býr hérna á ánni. Hann er flottur en ósköp einmana greyið því hinir svanirnir (sem allir eru hvítir) vilja aldrei leyfa honum að vera með.

Við Stefán hjá kringlóttu kirkjunni í miðbænum. Ég held að hann hljóti að standa á tám á þessari mynd...

Það var heilmikið líf á ánni.

Sumir voru í grænu í tilefni St. Patrics Day...

Páskaliljur og aðrir vorlaukar í fullum skrúða.

Hér erum við Stefán fyrir framan hina vel þekktu King's College kapellu, ekki langt frá íbúðinni okkar.

11 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Flottar myndir!
Til hamingju með að vera búin að skila ritgerðinni!
Sjáumst í næsta mánuði!
Bestu kveðjur frá mömmu og pabba.

Bára Mjöll sagði...

Takk :) Hlökkum til að sjá ykkur eftir rétt tæpan mánuð - heyrumst fljótlega.

Elva sagði...

Gaman að sjá svona margar myndir frá ykkur. Greinilegt að vorið er á næsta leiti. Hér er farið að skyggja skuggalega snemma eftir að þeir færðu klukkuna fram um eina klukkustund - sem mér finnst ekki gott :/

Bestu kveðjur!

Elva sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Elva sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Elva sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Elva sagði...

hmmm... ég eyddi hérna nokkrum kommentum frá mér þar sem sama kommentið vildi endilega birtast nokkrum sinnum. Mín mistök :)

Bára Mjöll sagði...

Ekkert mál Elva mín. Já, ég ákvað að skella bara nokkrum myndum inn í einu því mér finnst svo gaman að skoða myndir hjá öðrum og fattaði allt í einu að ég hef ekki verið mjög dugleg að setja inn myndir hjá okkur. Þið hafið staðið ykkur miklu betur á ykkar bloggi :)

Hannes sagði...

Okkar blogg er nú á hátindi ferils síns... njótið heil ;o)

Gott að heyra að allt er í sóma þarna uppfrá. Mikið déskoti væri nú gott að geta kíkt í kaffi ;)

Bára Mjöll sagði...

Segðu! Það væri nú líka gaman að kíkja til ykkar en ætli við verðum ekki að láta duga að heimsækja Grandakaffi ;)

Thorarinn sagði...

Sá svartan svan á flugi vestan Grímsstaða í morgun, líklega sami fugl og sást í Vopnafirði fyrir fáeinum dögum...