Fór í heimsókn í Comberton Village College í vikunni til að undirbúa rannsóknina mína. Það gekk mjög vel og gaman að koma aftur inn í grunnskóla þó þessi sé nú aðeins stærri en Seyðisfjarðarskóli... eða tæplega 1300 nemendur á móti tæplega 100! Ég fékk að fylgjast með spænskutíma hjá 7. bekk, mjög áhugavert. Svo fer ég aftur í tvo daga eftir páskafrí, fylgist með 5 tímum í viðbót og tek viðtöl við kennarana á eftir. Það verður stíft, en vonandi verð ég þá komin með nægilegt efni til að vinna úr fyrir lokaritgerðina.Í gærkveldi vorum við síðan í hrikalega skemmtilegu Íslendingapartýi hjá Nínu og Paul. Þau buðu öllum Íslendingum sem þau þekkja hér í Cambridge og nágrenni og slatta af Englendingum líka. Það var alveg fullt hús, fólk kom með börnin sín og allir voru kátir og hressir. Við vorum búin að hitta flesta áður, en kynntumst samt nokkrum nýjum, rosa gaman! Kata - þarna var m.a. fólk sem þekkir þig, þau Rúnar og Guðný! Það var spjallað og spjallað og svo tókum við Nína smá söngæfingu með Birni og við vorum svo ánægð með Hærra minn Guð til þín að við ætlum að reyna að komast að í Unitarian Church með þetta atriðið í messu fljótlega ;) En þarna voru örugglega ekki allir Íslendingarnir á svæðinu, ég veit alla vega um eina konu í viðbót og svo eru ábyggilega fleiri... Það kemur alveg fyrir að maður heyri talaða íslensku í bænum, en það geta þá líka verið túristar. Hér eru nokkrar myndir sem Regína tók í partýinu:
Lifið heil.


5 ummæli:
Sælar
Ohh ég hefði sko viljað vera þarna með ykkur, syngja og tralla. Og að hitta hann Björn vin minn :) Hafið það gott um páskana. Við ætlum að kíkja yfir á Seyðis í ungbarnasund og vonandi eitthvað á skíði en útlitið er nú ekki gott, búið að vera svo hlýtt, og á Vopna að hitta frændfólk Ása þar. Biðjum að heilsa, Kv Helga Dögg og strákarnir
Hér er líka 18 stiga hiti og alltof heitt. Snjórinn bókstaflega bráðnar úr hlíðunum. Það hefði verið gaman að taka lagið með ykkur.
Gleðilega páska.
Sælar mæðgur - vonandi verður nú einhver snjór eftir í fjallinu svo hægt verði að fara á skíði um páskana! Hér var æðislegt veður í gær, en í dag datt hitinn niður í 8 gráður og á að vera svipað á morgun en svo á aftur að hlýna. Við erum að ráðgera dagsferð niður að sjó með Nínu og þeim og Birni og Regínu, það verður örugglega fjör :)
Páskakveðjur.
Hér er enn sumar og sól. Fór á vespu síðustu helgi og skaðbrann í andlitinu :/
Páskakveðja frá "andfætlingunum"!
Þið eruð aldeilis heppin með veðrið Elva, búin að vera í sól og sumri nánast í heilt ár er það ekki?! Ferlega hefði verið gaman að heimsækja ykkur...
Páskakveðja :)
Skrifa ummæli