Hann Stefán okkar á 15 ára afmæli í dag. Alltaf er maður jafnundrandi á því hvað tíminn er fljótur að líða og það er erfitt að trúa því að þetta mörg ár séu liðin frá því hann fæddist á fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.Við vorum búin að bíða og bíða og bíða - takk enn og aftur Kata mín fyrir gistinguna :) - stundum vorum við upp í Mývatnssveit og Sandra var á Hömrum, svo fengum við verkalýðsíbúð á Akureyri og eyddum tímanum í bíltúra og gönguferðir í kafsnjó. Sérstaklega var erfitt að þrauka 29. febrúar en sem betur fer varð sá dagur ekki fæðingardagur Stefáns, annars væri hann ekki búinn að eiga nema 2-3 afmælisdaga! Ég man líka hvað við fengum fínar bakarísbollur á bolludaginn og að ég kom til Dalvíkur í fyrsta skipti.
Loks var ákveðið að setja fæðinguna af stað mánudaginn 9. mars og þessi fíni drengur kom svo í heiminn kl. 17:46 nákvæmlega, eins og lítið lukkutröll með mikið dökkt og úfið hár. Sandra sagði þegar einhver minntist á að hann líktist pabba sínum: "En hann er nú samt sætur!" Og nú er hann orðinn hálffullorðinn og við getum ekki þakkað nógsamlega hvað við erum heppin með börnin okkar bæði tvö. Til hamingju með daginn elsku Stefán minn!


13 ummæli:
Til hamingju með afmælið Stefán! Ég veit að það er tæknilega séð kominn 10.mars en ég er á næturvakt á elló svo það er enn níundi hjá mér ;)
Sandra hefur greinilega alltaf verið jafn mikill snillingur... gott ef ég er ekki bara sammála henni ;) Hahaha.
Bestu kveðjur til ykkar allra.
Innilega hamingju óskir með drenginn í gær, já tíminn er ótrúlega fljótur að líða. Mér finnst svo stutt síðan ég var 15 ára :) en það er víst 17 ára síðan. Allt gott að frétta hér, mamma og Guðjón eru í DK. Fjarðarheiðin var ófær í mest allan gærdag, það var bara óveður þar uppfrá. Tók eina mynd af Fjarðarheiðinni og setti á heimasíðuna okkar. Var svo fallegt veðrið. Jæja, bið að heilsa í bili og knúss handa Stefáni frænda.Kveðja Helga Dögg
Ég aftur, gleymdi að segja hvað þeir eru nú myndarlegir frændur mínir :) Kveðja Helga Dögg
Innilega til hamingju með afmælið í gær Stefán minn. Vorum að koma heim frá því að fylgjast með Jóni spila fótbolta sem vannst fyrir liðið hans. Bestu kveðjur frá Danmörku. Ólafía, Guðjón Már og Jón Kolbeinn
Innilegar hamingjuóskir með afmælið Stefán!
Ég verð að segja að ég man alveg eftir þessari bið, sérstaklega þessum 29. febrúar. Man að við mamma skruppum yfir í fimmtán á þessum degi og það var rætt hvort þú kæmir nokkuð þann daginn :) Fyrst hélt ég kannski að ég fengi þig í afmælisgjöf - en það var nú langt frá því, hehe...
Bestu kveðjur frá okkur Hannesi!
Aftur til hamingju Stefán. Mér er reyndar minnisstæð ferð um Möðrudalsöræfi rétt fyrir páska "92...
Annars léku Fylkismenn í grænum vestum á föstudag en spurning hvað verður á morgun (sunnudag) ef við leikum við þá um 3. sætið. Fylkir vann okkar riðil (3 sigrar og 1 jafntefli) en tapaði fyrir Breiðablik 2 í undanúrslitum.
Mývetningar urðu í öðru sæti í riðlinum (2 jafntefli, 2 sigrar) og leika í fyrramálið í undanúrslitum við Þrótt R. (sem sigruðu í öllum sínum viðureignum í hinum riðlinum).
Það verður erfiður leikur en sigurliðið mun hins vegar leika til úrslita í D-flokki við Breiðablik 2 eftir hádegið...
Hæ hæ, ég aftur. Við vorum í bollum í hádeginu hjá ömmu og afa. Auður og Kristján Smári komu líka. Auður Ösp prentaði þetta blogg um afmælisstrákinn og myndina af þeim feðgum líka. Þau voru svo ánægð með það og fannst svo gaman að sjá myndir af þeim. Við skruppum með ömmu út á Vestdalseyri og ég tók myndir af fjöllunum svo þið getið séð hvað er mikill snjór enn í fjöllunum :) Bestu kveðjur, Helga Dögg
Til hamingju með afmælið þann 9. mars Stefán minn.
Bestu kveðjur til ykkar Bára Mjöll og Jóhann frá okkur. Erum bæði búin að liggja í flensu en erum að komast til heilsu á ný sem betur fer!
Kv. Inga og Andri Ásgeir.
Mývetningar enduðu í 4. sæti í D-flokki en stóðu sig engu að síður mjög vel.
Reyndar var líka töluvert "fjör" á kórloftinu í messu á sunnudag, þar sem ferskeytlur flugu í allar áttir!
Takk fyrir afmæliskveðjur og aðrar kveðjur, elskurnar! Ótrúlega gaman að heyra í ykkur öllum :)
Skrifa meira þegar ég er búin að skila ritgerðinni á föstudaginn...
Hæ hæ, til hamingju með 15 árin hans Stefáns.... Vonandi er betra seint en aldrei að fá síðbúna afmæliskveðju...
.. og Bára mín, gangi þér vel með ritgerðina...
Kærar kveðjur úr firðinum fagra,
Solla
Síðbúnar afmæliskveðjur frá okkur ;)
já - tíminn líður svo sannarlega - nafni hans Stefán Þór er bara árinu á eftir og verðandi fermingadrengur núna eftir rétt viku. Við mamma vorum að rifja þetta upp um daginn hvaða fermingar eru nýliðnar og hverjir fermast á komandi árum ... :)
baráttukveðjur á lokasprettinum ;)
Kristbjörg :)
Takk, takk Sirrý Sif, Helga Dögg, Ólafía, Elva, Pálmi, Inga, Solla og Kristbjörg :) Skemmtilegar pælingar og punktar sem koma hér fram - þið eruð öll frábær!
Skrifa ummæli