25.2.07

Vorboðinn ljúfi

Eitt fyrsta merkið um vorkomuna hér er þegar trén fara að blómstra. Já, trén! Þessa mynd tók ég einn morguninn í vikunni af þessu vorlega tré í garðinum hér hinum megin við götuna. Á hverjum degi bætast fleiri tré í hópinn og blómin eru í öllum litbrigðum frá hvítu yfir í grátt yfir í bleikt yfir í rautt o.s.frv. Mjög skemmtilegt og óvenjulegt fyrir okkur að sjá. Ég gæti trúað að þetta séu ávaxtatrén sem bera blóm áður en ávextirnir fara að þroskast, þó ég viti það ekki fyrir víst. Annar vorboði eru vorlaukarnir sem víða hafa stungið upp kollinum og eru líka að byrja að blómstra. Ekki amalegt að upplifa vorkomuna svona í febrúar.

Helgin er búin að vera skemmtileg hjá okkur; á föstudagskvöldið fórum við með Nínu og þeim út að borða á japanskan veitingastað (sushi-ið var æði!) og í gærkveldi buðum við Birni "í næsta húsi" og Regínu í mat. Það var mjög skemmtilegt að fá þau í heimsókn, en við höfðum ekki hist síðan fyrir jól. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Í dag átti síðan að vera leikur hjá Stefáni eins og venjulega en honum var frestað þar sem völlurinn var á floti eftir rigningu í nótt. Þeir feðgar skruppu því í golf og svo ætlum við að kíkja á Fitzwilliam safnið seinnipartinn. Ég á að vera að vinna í ritgerðinni minni þangað til... þannig að ég segi þetta gott í bili og bið bara að heilsa :)

11 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl Bára mín, alltaf gaman að fá kveðju frá ykkur á síðuna hjá strákunum. Við Kristján Jakob skruppum á skíði í dag, ótrúlega gaman og fórum svo í pönnukökur til ömmu og afa. Amma bakaði pönnukökur í gær því það sást til sólar á Seyðis, 24.febrúar :) Helga frænka var víst hissa á því að amma hafi ekki haft pönnukökur þann 14.febrúar (minnir mig) þegar á að sjást til sólar á Seyðis, það var alltaf gert í Frammhúsinu, hvernig sem viðraði úti :) Bestu kveðjur frá okkur öllum á héraðinu, Helga Dögg og strákarnir

Jón Kolbeinn Guðjónsson sagði...

Ég hélt líka að vorið væri komið til danmerkur í síðusu viku. Næsta dag þá var skólanum lokað vegna snjókomu.

Elva sagði...

Ég get ekki alveg sagt það sama um vorið hérna megin... hér telst þó enn vera sumar, sem betur fer. Ætli það fari ekki að hausta í apríl. Well, kemur í ljós.

Hafðu það áfram gott elsku frænka :)

Nafnlaus sagði...

Vorið er ekkert á leiðinni hjá okkur. Nægur skíðasnjór og sólin lét sjá sig í dag. Ég fór á Vopnafjörð í fallegu veðri, hreindýrin á beit á fjöllunum.
Kveðjur frá Seyðis.
Ólafía

Nafnlaus sagði...

Sæl Bára Mjöll, var á bloggrúnti þegar ég endaði hjá þér. Gaman að sjá hvað þú ert dugleg á "efri" árum að skella þér í nám :)

Skellti síðunni í favorites & mun kíkja hér, ef það er ok þín vegna.

kv gamall nemandi þinn, Lilja Sigmarsdóttir

www.blog.central.is/kruttan

Nafnlaus sagði...

O ... öfunda ykkur af vorkomunni ... svo sem ekki hægt að segja að það sé vetur í höfuðborginni - allt autt en svona kaldir vindar inn á milli. Er bara farin að hlakka svo til vorsins þegar þarf ekki að dúða barnið í kuldagalla oþh hehe :) Vor sem kom svona snemma var nú eitt af því sem hélt mér í USA árinu lengur á sínum tíma - þetta er bara yndislegt ;)
Baráttukveðjur við ritgerðina -
Kristbjörg & fjölsk. :)

Bára Mjöll sagði...

Takk fyrir kveðjurnar kæru vinir, gaman að fá svona góð viðbrögð :)

Vetur, sumar, vor og haust - hver árstíð hefur sinn sjarma, þó vorið sé alltaf yndislegt. Til hamingju með sólina Seyðfirðingar!

Lilja mín, gaman að heyra í þér. Auðvitað máttu kíkja á síðuna mína, ég kíkti líka á þína og sá að það er nóg að gera hjá þér! Bestu kveðjur til pabba þíns.

Hannes sagði...

Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr sem fer...

Nafnlaus sagði...

Heppin þið.
Hér snjóar.... :)

Nafnlaus sagði...

Takk kærlega fyrir afmæliskveðjuna á síðuna hjá strákunum, komnar nokkrar myndir frá deginum. Kær kveðja Helga Dögg og strákarnir 3

Bára Mjöll sagði...

Hannes, þú færð prik fyrir ljóðakunnáttu !! (Þetta er að verða hálfgert þema í fyrirsögnum hjá mér...).

Vorkveðjur til ykkar Sirrý og Helga Dögg og ykkar allra :)