1.2.07

Tunglið, tunglið taktu mig

Sá ekki betur en að tunglið væri fullt áðan þegar ég var að koma heim úr búðinni. Ótrúlega flott. Mjög hressandi að fara hjólandi í búðina kl. 7 að kvöldi í tunglskininu. Allt orðið miklu rólegra í bænum, ekki þessi brjálaða umferð sem er hér allan daginn og veðrið svo endalaust milt. Samt brá mér einu sinni alveg rosalega þegar ég var á leiðinni heim úr búðinni í kvöldmyrkrinu. Ég var að hjóla meðfram garðinum sem er hér fyrir framan hina blokkina þegar mér verður litið snöggt til hægri. Situr þá ekki maður í lótusstellingu undir einu trénu og það var eins og hann væri upplýstur einhvern veginn eins og innan frá! Og þetta var einmitt á Halloween...

Síðar kom í ljós að þessi maður býr hér í annarri hvorri blokkinni og stundar það að sitja í hugleiðslu undir tré í garðinum. Skrýtið samt að það skyldi lýsa svona af honum. Eða kannski ekki.

Kominn 1. febrúar. Allt á fullu í skólanum og ekki minnka kröfurnar. Þetta er sko hörkupúl og mikil vinna, þó það séu óneitanlega forréttindi að fá að einbeita sér að náminu allan daginn og þurfa ekki að hafa áhyggjur af brauðstritinu. Ég er líka alltaf að kynnast svo áhugaverðu fólki, í skólanum í dag t.d. talaði ég við Indverja sem býr í Dubai, Íslending, Kýpurbúa, tvo Kínverja, þrjá Ameríkana og nokkra Englendinga. Algjör snilld, takk fyrir mig.

14 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Tunglið var líka alveg ótrúlega fallegt einn morguninn þegar ég var á leið í vinnuna. Það var svona hálft (samt fullt) á bak við Fellið í Stafdal. Það ljómaði allt í myrkrinu. Sól er farin að hækka á lofti og veðrið frábært hér í fjörðinum fagra.Góða helgi
ólafía

Nafnlaus sagði...

Sæl Bára Mjöll. Við vorum að lesa um tunglið, ég, amma og afi. Þau komu við hjá mér eftir Bónusferð og fengu kaffi hér. Þau biðja kærlega að heilsa.Þeim finnst svo gaman að lesa bloggið þitt. Biðjum að heilsa öllum og góða helgi. Kveðja Helga dögg

Thorarinn sagði...

Flott mynd, takk fyrir mig.

Nafnlaus sagði...

Langafi hefur greinilega verið í góðu skapi :) Hann er nú einu sinni karlinn í tunglinu núna ;), annars bið ég fyrir kveðju í kotið :*

Bára Mjöll sagði...

Já tunglið er magnað, það er satt. Og öll erum við að horfa á sama tunglið hvar sem við erum. Ég get víst ekki eignað mér myndina því ég hafði nú ekki rænu á að taka myndavélina með, frekar en fyrri daginn... Ég valdi hana á netinu því hún líkist tunglinu sem ég sá í gær. Og já já, langafi karlinn í tunglinu var þarna líka, Sandra ;)

Biðjum sömuleiðis að heilsa öllum með óskum um góða helgi.

Elva sagði...

Já tunglið og stjörnurnar eru magnaðar. Við Bergþóra vorum einmitt að horfa á stjörnuhimininn hérna niðurfrá í gærkvöldi. Ég vildi bara að ég væri fróðari um þessa hluti. Við sáum eitt merki sem við þekktum (Orion) en hann var náttúrulega á hvolfi. En samt sem áður lítur stjörnuhimininn allt öðruvísi út hérna. Niðurstaðan var sú að við sæjum hluta af stjörnunum sem maður sér venjulega norðan við miðbaug. Getur ekki verið að það meiki einhvern séns? (afsakið "íslenskuna")

Elva sagði...

Já tunglið og stjörnurnar eru magnaðar. Við Bergþóra vorum einmitt að horfa á stjörnuhimininn hérna niðurfrá í gærkvöldi. Ég vildi bara að ég væri fróðari um þessa hluti. Við sáum eitt merki sem við þekktum (Orion) en hann var náttúrulega á hvolfi. En samt sem áður lítur stjörnuhimininn allt öðruvísi út hérna. Niðurstaðan var sú að við sæjum hluta af stjörnunum sem maður sér venjulega norðan við miðbaug. Getur ekki verið að það meiki einhvern séns? (afsakið "íslenskuna")

Bára Mjöll sagði...

Hihi, Orion á hvolfi... við horfum einmitt oft á hann hérna megin. Ég held Elva, að skýringin ykkar sé bara nokkuð góð, þó ég sé nú farin að ryðga í fræðunum sem ég lærði hjá Ara Trausta í menntó. En ætli það sé ekki hægt að finna myndir á Netinu af stjörnuhimninum eins og hann lítur út þar sem maður er staddur á hnettinum í það og það skiptið?

Elva sagði...

Já það væri snilld ef maður gæti fundið stjörnukort af himninum, eftir því hvar maður er staddur. Spurning um að googlsa þetta bara. Ég lærði því miður bara ekkert í stjörnufræði í menntó sveimérþá. Nema einn tíma þegar við náðum stærðfræðikennaranum okkar upp á snakk um stjörnufræði (hann kenndi nefnilega eðlisfræðibrautinni líka stjörnufræði). Það var góður stærðfræðitími :)

Hannes sagði...

If you belive; they put a man on the moon...

Thorarinn sagði...

Tvö stjörnukortaforrit (bæði ókeypis):
Sky Charts
Asynx Planetarium
(Hvorki skal tekin ábyrgð á virkni né gæðum...)

Svo er auðvitað:
RedShift 5.1 (sem kostar £19.99 hjá amazon.co.uk).

Elva sagði...

Takk fyrir það Pálmi! Ég ætla að prófa að kíkja á þetta :)

Daniel sagði...

Dear Bara,
Thank you very much
i have set up my weatherpixie
see you tomorrow
Chih-Jen

Bára Mjöll sagði...

You're welcome Chih-Jen, see you tomorrow.