15.2.07

Stratford-upon-Avon

Loksins koma hér myndir sem ég var búin að lofa kínverskum félögum mínum í skólanum að setja inn frá ferðinni til Stratford og Oxford um síðustu helgi. Ekki er hægt að segja að veðrið hafi leikið við okkur - það snjóaði svo mikið á leiðinni þangað að við vorum hætt að sjá á skiltin á tímabili. Það var heldur óþægileg tilfinning en við lentum samt ekki í neinum ógöngum og komumst áfallalaust á hótelið þar sem við gistum. Daginn eftir skoðuðum við Stratford í þokkalegu veðri og verð ég að segja að það var ótrúlega gaman að koma þangað. Mjög fallegur gamall bær, mæli með heimsókn þangað. En svo byrjaði að rigna þegar við vorum að keyra um Cotswalds hérað og alveg hellirigndi á meðan við vorum í Oxford. Það varð því stutt stopp og ljóst að við þurfum helst að fara þangað aftur. Við komumst að því að febrúar er kannski ekki alveg tíminn til að skoða sig um í Englandi, en nú styttist (vonandi) í vorið.
The New Inn Hotel, where we stayed.

Shakespear's birthplace in Stratford-upon-Avon.

The famous golden Cotswolds stone.

Oxford in the rain.

P.s. Andrew, isn't that where you went to school?

11 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ
Amma og afi voru hér hjá okkur í kaffi, afi var með bílin í smurningu hjá Ella spray! Þeim fannst gaman að fá lesturinn frá þér og myndirnar þínar eru fínar. Takk fyrir kveðjurnar á heimasíðuna hjá strákunum. Bið að heilsa þínum strákum og öllum. Kveðja Helga Dögg

Nafnlaus sagði...

Varð bara að kvitta fyrir mig :) Gaman að fylgjast með ykkur og það hefur nú bara verið gaman fyrir ykkur að lenda í smá íslensku veðri!
Hér er annars bolludagur í dag en ég ætla ekki að hafa bollukaffi fyrr en um næstu helgi þegar Andri kemur heim en hann er í vetrarfríi hjá pabba sínum.
Yndislegt að fá svona vetrarfrí. Ég var í fríi í síðustu viku og við fórum í sumarbústað við Flúðir. Alveg ofsalega gott :)
Bestu kveðjur til ykkar allra.

Nafnlaus sagði...

Sæl verið þið.
Spurningakeppni kvöld, saltkjöt og baunir hjá mömmu í hádeginu. Bollur í gær og á sunnudag. Ykkar var sárt saknað í bollukaffi.
kveðjur úr súld og roki
Ólafía

Nafnlaus sagði...

Flottar myndir :)

Bára Mjöll sagði...

Helga Dögg, bestu kveðjur til ykkar líka og sérstaklega til ömmu þinnar og afa, hafið það gott.

Já Inga, það var bara flott að fá smá vetrarveður en nokkrir dagar voru alveg nóg! Gaman að heyra frá þér og gott að vita að þið eruð hress.

Ólafía, við fengum víst hvorki bollur né saltkjöt og baunir, ekki einu sinni pönnukökur þó það hafi verið Pancake Day hér í dag. En Jóhann eldaði þessar fínu hakkabuff-bollur í gærkveldi. Biðjum að heilsa á spurningakeppnina.

Sirrý, takk fyrir kvittið - ég kvittaði líka hjá þér!

Endilega verið dugleg að kvitta kæru gestir, það er svo gaman að heyra frá ykkur :)

Nafnlaus sagði...

Hæ, hæ.

Kíkir þú á netfangið sem þú varst með í skólanum (sfk)? Var að koma heim af söngæfingu, nú verður gospelmessa um helgina. Mjög skemmtilegt.
kv. Ólafía

Bára Mjöll sagði...

Jájá, Ólafía ég kíki reglulega á thad - takk fyrir póstinn :) Bid kærlega ad heilsa kirkjukórnum!

Nafnlaus sagði...

Líst vel á þetta - Kær kveðja

Nafnlaus sagði...

Sæl Bára mín.
Gaman að fylgjast með ykkur þarna úti, ég kíki stundum hingað inn á síðuna og veit meira um ykkur núna en þegar þið voruð á Seyðisfirði. Héðan er allt gott að frétta, snjóar mikið núna og allt að verða hvítt, veðrið verstnaði á öskudag var búið að vera mjög gott lengi.
Kær kveðja og hafið það skemmtileg og gangi þér vel í skólanum.
Hrafnhildur

Nafnlaus sagði...

kvittikvittikvitt :)

Bára Mjöll sagði...

Hæ Hrafnhildur, ég veit - þetta er snilld. En hvenær ætlar þú að byrja að blogga líka svo ég geti fylgst með hvað þið eruð að bralla? ;) Bestu kveðjur í Voga.

Og auðvitað líka kveðjur til Ný-Sjálendinga :)