8.2.07

Meiri snjór!

Það er sem ég segi, "you better be careful what you wish for, because you might get your wish"! Við fengum sem sagt meiri snjó. Það var búið að spá þessu nákvæmlega, "heavy snow" sem eru 10-15 cm. Það náði því þó ekki hér hjá okkur; Jóhann mældi 2,5-3 cm snjólag í morgun þegar hann fór í vinnuna - en að sjálfsögðu fór allt úr skorðum í bænum. Skólar voru lokaðir (þ.á.m. skólinn hans Stefáns) fólk komst ekki í vinnuna og hinum og þessum uppákomum var frestað. Allir bara úti að skemmta sér í snjónum við að búa til snjókarla og snjóhús. Ég fór í skólann á hjólinu að venju og átti ekki í neinum vandræðum með það. En þegar þangað kom, hafði tímanum sem ég var að fara í auðvitað verið frestað þar sem kennarinn var fastur í umferðinni. Skilaboðin í fjölmiðlum voru: ef þú þarft ekki alveg nauðsynlega að fara út í dag, vertu þá bara heima.

Við erum samt að fara úr bænum á morgun og ætlum að vera eina nótt í burtu, en það er leikur hjá Stefáni á sunnudagsmorguninn þannig að við komum heim annað kvöld. Stefnan hefur verið sett á Stratford-upon-Avon, Cotswalds og Oxford. Verður örugglega gaman þó veðurspáin sé ekkert sérstök. Snjókoman breytist í rigningu en áfram verður frekar kalt. Stefán verður í vetrarfríi alla næstu viku og svo má nú bara alveg fara að vora.

8 ummæli:

Elva sagði...

Flott vetrarmynd sem þú hefur tekið þarna út um gluggan hjá ykkur (er þetta ekki örugglega tekið út í garð...?).

Ég get ekki sagt að það sé vetrarlegt hér. Ég er SKAÐBRUNNIN á bakinu þar sem rauðhausinn ég var svo vitlaus að fara á ströndina í dag og GLEYMDI að bera sólarvörn á bakið (mundi eftir öllum öðrum stöðum). Svo núna er ég í brunameðferð hjá Hannesi hjúkku :) Hann stendur sig vel kallinn - spurning hvort hann leggi þetta ekki bara fyrir sig þegar hann fær leið á tölvunum...

Bestu kveðjur!

Bára Mjöll sagði...

Takk Elva, jú thessa mynd tók ég út um stofugluggann hjá okkur eins og fleiri sem ég hef birt hérna. Thú nærd thér vonandi fljótt af brunanum fyrst Hannes er svona efnilegur - er thad jógúrtmedferdin?

Jón Kolbeinn Guðjónsson sagði...

hehehe frábærir þessir bretar! hérna í DK er líka vetur. Búið að snjóa pínu, samt ekkert sem festist. Það passar yfirleitt að það snjóar meðan ég er á fótboltaæfingu. Annars bið ég bara að heilsa köllunum þínum.

Elva sagði...

Nei, jógúrtmeðferð er það ekki. Heldur bruna-og verkjaáburðarmeðferð ásamt aloa vera, allt í bland :)

Hafið það áfram gott, ég bið svo að heilsa Jóhanni og Stefáni.

Nafnlaus sagði...

Flott hjá þér myndin Bára Mjöll mín ;) þið eruð feikna góðir ljósmyndarar þú og bróðir þinn(eldri - þar sem ég hef ekki séð eftir þann yngri - hehe)
Allt gott að frétta af okkur - daman dafnar vel og er elskuð og dáð af öllum ;)´
Gangi þér voða vel við skrifin - bestu kv. til ykkar allra -
Kristbjörg & fjölsk :)

Hannes sagði...

blíðar heilsur !

Nafnlaus sagði...

Hér er snjórinn allur að bráðna niður, rignir þessi líka ósköp.
Hér fara menn annars bráðum að drekka sólarkaffi.
kv. Ólafía

Bára Mjöll sagði...

Takk fyrir góðar kveðjur öll sömul og biðjum kærlega að heilsa til baka til Danmerkur, Nýja Sjálands og Íslands - bæði í Kópavog og á Seyðisfjörð!

Snjórinn stoppaði nú ekki lengi og veðrið undanfarið hefur helst minnt á venjulega íslenska sumardaga. Páskaliljur hér við kanalinn fyrir utan gluggann hjá okkur eru t.d. alveg við það að springa út.