Í gær- morgun þegar við vöknuðum var nánast alhvítt yfir að líta. Það hafði sem sé snjóað. Veðurfræð- ingarnir hér hafa keppst við að spá frosti og snjó undanfarið og loksins náði þetta "kalda" veður og snjókoman alla leið til okkar. Ég verð að segja að það var ákaflega hressandi að líta út um gluggann og fallegt (eiginlega jólalegt) að sjá snjóinn í trjánum. En um leið og sólin fór að skína byrjaði snjórinn að bráðna og þegar þessi mynd var tekin um 10 leytið var bara smávegis eftir og nú er hann allur farinn :( Það hefur verið næturfrost í nokkrar nætur en farið rétt upp fyrir frostmark á daginn. Ekki er mikil von um meiri snjó í bili a.m.k. því spáin gerir ráð fyrir hlýnandi veðri á morgun.Það hefur verið mikið að gera hjá mér síðan skólinn byrjaði aftur í síðustu viku og verður áfram fram að páskafríi býst ég við. Það er líka alveg brjálað að gera hjá Jóhanni, hann mætir yfirleitt í vinnuna kl. 7 á morgnana og vinnur til 6 á daginn. Og það er sko ekki setið í kaffi allan daginn, heldur unnið stanslaust og varla tekinn matartími, hvað þá meira. Við höfum verið að melta með okkur hvort við ættum að skella okkur á þorrablótið í London um aðra helgi, en það er spurning hvað verður.
Þeir feðgar eru á fótboltaæfingu þessa stundina, þ.e. Stefán er á æfingu en Jóhann er bílstjóri og fylgdarmaður. Þeir pöntuðu að fá "doner" í matinn þegar þeir koma heim, svo ég þarf að trítla á eftir út í söluvagn sem staðsettur er hér rétt hjá á kvöldin og selur kebab, hamborgara og svoleiðis. Hann er greinilega vinsæll því það er alltaf röð hjá honum.
Á laugardaginn verður minningarathöfn um Joan, mömmu hans Paul sem lést í nóvember sl. og Stefán ætlar að spila eitt lag á saxófóninn. Að öðru leyti er helgin ekki plönuð. Ætli við verðum ekki bara heima í afslöppun eftir erfiða viku...


6 ummæli:
Sæl og blessuð.
Var að koma heima af kirkjukórsæfingu, komin nýr kórstjóri sem lofar góðu. Þorrablótið er um helgina.
kv. úr blíðunni á Seyðis
Ólafía
Þetta eru góðar fréttir Ólafía - en hver er þessi nýi kórstjóri?
Sæl Bára. Ætlaði bara að kvitta fyrir heimsóknina. Allt gott að frétta, hér er allur snjór að fara, en vonandi getum við farið með Kristján Jakob á skíði um helgina, heilsan er öll að koma hér hjá okkur. Bið að heilsa strákunum þínum og The Waldmanns. Kveðja Helga Dögg
Hér er lítið um snjó þessa dagana. Meira bara um sól og hita. Tja... ég er reyndar að ljúga núna. Við sáum reyndar skíðabrekku hér í Auckland um daginn. Ekki svo langt frá er innanhússskíðasvæði. Það var pínu skondið að fara þangað inn úr 30 stiga hitanum úti og sjá fólk í fullum skíðaklæðnaði á snjótbretti!
Kveðja frá Auckland.
Heyrðu hún heitir Suncana og er skólastjóri á Brúarási (tónslistar) Charles Ross er maðurinn hennar og spilar hann á fiðlu í messum. Nú verðu fjör, við vorum í gær að syngja gospel söngva. Gaman, gaman.
kv. Ólafía
Beztu kveðjur...
Skrifa ummæli