3.12.06

Jólafrí :)

Púff, tókst að skila ritgerðinni og það meira að segja tæpum tveim tímum áður en skilafresturinn rann út! Þetta var mikil törn og mun meiri vinna en ég hafði reiknað með, en verður vonandi léttara næst. Jæja, nóg um það, nú er ég komin í jólafrí :)

Í gær var svona 'fair' eða markaðsdagur á Mill Road þar sem Nína var með búðina sína og hún var að selja dót sem hún átti afgangs. Við fengum okkur göngutúr þangað til að reyna að komast í smá jólastemmingu, það gekk svona lala. Á bakaleiðinni fórum við í gegnum kirkjugarðinn þar sem þessi jólalegi kristþyrnir er og ákváðum að láta myndavélina smella einni mynd af okkur með hann og þetta flotta grenitré í bakgrunn. Því miður var svona mikil sól beint á móti eða eitthvað, alla vega er myndin heldur yfirlýst en væri annars bara góð. Þegar við komum heim var byrjað að skyggja og tunglið sem var næstum fullt, skein inn um gluggann hjá okkur í gegnum trjágreinarnar sem nú hafa nokkurn veginn fellt laufblöðin.

Í dag átti að vera leikur hjá Stefáni, en honum var frestað vegna úrhellisrigningar sem var snemma í morgun. Í staðinn fórum við í bíltúr út fyrir bæinn og versluðum í Waitrose, rosa fínum stórmarkaði. Horfðum svo á Color Purple þegar við komum heim. Ég sá hana fyrir mörgum árum, en las bókina fyrst í fyrra. Mögnuð mynd og alveg þriggja vasaklúta, lágmark.

Er að reyna að finna út hvernig ég get reddað laufabrauðinu, ætli það endi ekki með því að ég fái bara uppskriftina hjá mömmu og búi það til frá grunni... veit annars einhver um ferð fyrir jól?

9 ummæli:

Elva sagði...

Til hamingju með að vera komin í jólafrí!!!

Kemur Sandra ekki til ykkar um jólin?

Nafnlaus sagði...

Sæl verið þið.
Er nokkuð mál að senda laufabrauðið með póstinum? Við vorum í Reykjavík um helgina á jólahlaðborði. Nóg að gera í þeim, förum svo til Akureyrar um næstu helgi á jólahlaðborð og leikhús. Hér rignir líka og næsutm allur snjór farinn.
Öfunda þig að vera komin í jólafrí,
kveðja Ólafía

Bára Mjöll sagði...

Takk Elva :) - nei Sandra og Arnþór koma ekki fyrr en 1. jan. Hann gat ekki fengið frí í vinnunni fyrr en þá.

Góða skemmtun á Akureyri Ólafía, við verðum með ykkur í anda og komumst vonandi með næst! Okkur langar að fá ósteikt laufabrauð en það yrði sennilega ónýtt á leiðinni, það getur tekið alveg 10 daga að senda hingað pakka.

Nafnlaus sagði...

Það væri nú kannski hægt að senda tvo, þrjá bauka af tilbúnu laufabrauði til ykkar. Það væri a.m.k. betra en ekkert.

Með því að setja eldhúsrúllublöð efst, neðst, utanmeð og á milli ætti meiri hlutinn að komast óbrotinn. Það væri m.a.s. hægt að kaupa skorið en ekki uppábrett, þá ættu kökurnar að þola flutninginn enn betur. Sjáum til með það...

Bára Mjöll sagði...

Mmm, þó ekki væru nema 2-3 kökur. Við sjáum til, það fellur náttúrlega til ferð þegar Sandra og þau koma...

Nafnlaus sagði...

Er með smá hugmynd sem er ættuð frá Helgu Dögg. Það er svo mikið mál að fletja deigið út en ef það er sett í gegnum pastavél (t.d lasagne blöð) er hægt að skera fallega út. Hver segir að laufabrauð þurfi endilega vera kringlóttar kökur. Á ekki Nína systir mín pastavél?

Nafnlaus sagði...

Kær kveðja til ykkar frá mér.Alda

Bára Mjöll sagði...

Takk fyrir hugmyndina um pastavélina Ólafía, það er aldrei að vita nema hún verði notuð!

Og takk fyrir kveðjuna Alda, vonum að þið séuð hress og biðjum líka fyrir kærar kveðjur til þín og þinna.

Bára Mjöll sagði...

Smáleiðrétting: Sandra og Arnþór verða hérna 4.-10. janúar, bara svo það sé á hreinu...