10.12.06

Ekkert stress!

Síðasta vika hefur einkennst af jólaundirbúningi, en aldrei þessu vant er ekkert stress! Jólastressið illræmda sem oftar en ekki hefur hrjáð mig í desember, hefur bara ekki látið á sér kræla í þetta sinn. Sennilega hjálpar mikið að vera í fríi. Við verðum heldur ekki mikið vör við auglýsingar og annan áróður um að kaupa dýrar jólagjafir. Og einhvern veginn er eins og meiri ró yfir bænum því margir námsmenn fara heim í jólafríinu eða nota fríið til að ferðast. Það er greinilega ekki gert jafnmikið úr jólunum hér og heima á Íslandi, hér er þjóðfélagið svo fjölmenningarlegt að stór hluti íbúanna heldur ekki einu sinni upp á jólin sem trúarlega hátíð.

Við fórum aðeins á markaðinn í miðbænum í gær og þar var fólk bara að skoða og rölta um í rólegheitum. Ég stóðst ekki freistinguna að kaupa eitt búnt af mistilteini til að fara með heim og hengja upp í gluggana hjá okkur (sjá mynd). Einhvers staðar heyrðum við bumbuslátt, runnum á hljóðið og þar var þá dansflokkur að sýna þjóðdansa frá einhverju landi. Hópurinn skiptist alveg í tvennt hvað búningana varðaði; svona helmingurinn var í litríkum búningi og tréskóm með bjöllum, en hinn helmingurinn var svartklæddur og svartmálaður í framan með hrúgu af laufblöðum á hausnum og langt niður á bak! Við höfðum aldrei séð annað eins og ekki vissum við hvaðan þau komu, en dansinn var flottur.

Í gærkveldi fórum við með Nínu og Paul á frábæra tónleika með Britten Sinfonia ásamt Kór St John's College og einsöngvurum. Á efnisskránni voru tvær messur eftir Haydn og eitt verk eftir Bartók. Mér fannst báðar messurnar æðislegar og verkið eftir Bartók var flott, en það var þyngra. Í kórnum voru 13 ungir karlmenn og 17 ungir drengir og þeir voru alveg ótrúlega góðir. Yngstu strákarnir voru ekki nema svona 7 ára og það var gaman að sjá hvað þeir voru einbeittir og agaðir allan tímann. Um næstu helgi verður Sköpunin eftir Haydn flutt í þessum sama tónleikasal og mig dauðlangar að athuga hvort enn séu til miðar.

Jæja, við ætlum að skreppa í bíltúr á stað sem heitir Scotsdale, það er víst skemmtileg blómabúð og kaffihús hérna rétt fyrir utan bæinn.

Take care.

13 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæ hæ
þetta er almennilegt - bara að vera slakur og fínn í desember :) fyrir utan ferðatilhlökkun og spenning er ég bara nokkuð slök - hehe ;), en aldrei slíku vant er ég ekki bundin yfir lærdómi í desember og það er bara yndislegt :)
Bestu kveðjur - Kristbjörg á leið til Kína ;)

Elva sagði...

Já það er mikill munur að þurfa ekki að lesa undir próf í desember, já eða búa til próf og fara yfir :)

Annars eru allir slakir hér á Nýja-Sjálandi líka, ekki eins mikil skreytingagleði og á Íslandi. Enda ekkert skammdegi til að lýsa upp. Ég sakna þess smá....

Bestu kveðjur!

Thorarinn sagði...

Ef einhvern vantar sýnishorn af mývetnskri hátíðarstemningu þá getið þið giskað á hvar það er að finna... Í kvöld var sem sagt hin árlega aðventustund.

Nafnlaus sagði...

Það er fínt að vera ekki í stresskasti yfir jólunum. Þó koma hvort sem maður er búin að baka eður ei. Annars eru það jólahlaðborðin sem eru alveg að fara með mann. Hér í bæ er allt orðið svo jólegt, tré í Hólmanum og við Sjúkrahúsið.Aðventuhátíðin var í gær.
Hafið það gott, kveðja frá Seyðis

Bára Mjöll sagði...

Frábærar fréttir frá ykkur Kristbjörg - hvenær leggið þið af stað?

Hérna er sko skammdegi Elva, orðið dimmt um kaffileytið og fullt af jólaljósum í bænum. En fólk skreytir húsin sín ekki eins mikið og heima, helst að maður sjái glitta í ljósum prýdd jólatré fyrir innan gluggana. Ég sakna þess hins vegar að hafa engan snjó...

Takk fyrir myndirnar og fréttirnar Pálmi, alltaf flottar og hjálpa mikið upp á jólastemmninguna :)

Sammála því Ólafía, það er dálítið mikið af jólahlaðborðum á Íslandi. Ekkert svoleiðis hér, nema bara um sjálf jólin. En var ekki gaman á Akureyri?

Ég hefði gjarnan viljað vera með ykkur á aðventuhátíð, þyrfti að komast á a.m.k. eina.

Nafnlaus sagði...

Ég náði ekki aðventuhátiðinni. Kirkjukórinn er allur í upplausn, það er ekki byrjað að æfa fyrir jólin. Enginn kórstjóri má vera að því að sinna því. Veit hreint ekki hvernig verður með jólamessur í ár.
kveðja til allra
Ólafía

Bára Mjöll sagði...

Þetta er ekki gott Ólafía, gengur ekkert að fá nýjan kórstjóra?

Nafnlaus sagði...

Gengur ekkert. Það vantar víst út um allt land organista. Geturu ekki fundið einhvern í Bretlandi?
kv. Ólafía

Nafnlaus sagði...

við erum að fara á sunnudaginn - og ekkert smá spent ;)
kíktu á slóðina: www.barnanet.is/kinastelpan, sendu mér línu og fylgist endilega með :)

kv. Kristbjörg í algjörri niðurtalningu og tilhlökkun en ótrúlega spök samt ;)

Bára Mjöll sagði...

Ég get reynt Ólafía - en hvað með Sigga, er hann ekkert að fá nóg af þessu flakki? Það verður bara að kyrrsetja manninn, hann myndi alveg ráða við þetta ;)

Takk fyrir slóðina Kristbjörg, (er búin að senda þér línu) og góða ferð til Kína!

Nafnlaus sagði...

.. beztu kveðjur

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ
Allt gott að frétta hér. Talaði vi ömmu í gærkvöldi (sunnudag) og hún bað mig um að skrifa ykkur að það væri allt gott að frétta af þeim,afi bakaði krústæður hjá mömmu og Guðjóni í gær. Það gekk vel.Ætla kannski að kíkja á okkur í dag. Bið að heilsa í bili og kær kveðja frá ömmu og afa. Helga Dögg

Bára Mjöll sagði...

Við höfum einmitt verið að velta því fyrir okkur hvernig færi með krústæðurnar, gott að vita að það gekk vel. Bestu kveðjur til baka, bæði á norður- og suðurhvel jarðar...