Í síðustu viku fengum við myndir sem við pöntuðum frá Íslandi í jólakortin okkar. Það var síðan samvinnuverkefni fjölskyldunnar að föndra kortin og skrifa á þau. Tók ekki nema tvö kvöld og einn dag og var bara hin besta skemmtan. Ég vil endilega halda í þann sið að senda jólakort, mér finnst gott að hafa tækifæri til að hugsa til fólks með því að senda jólakveðju.
Mér finnst líka svo skemmtilegt að fá jólakort og ekki síst núna þegar við erum ekki heima og höfum aðeins hitt fáa af ættingjum og vinum á Íslandi undanfarna mánuði. Í morgun kom fullt af kortum með póstinum, t.d. tvö skemmtileg myndakort; annað frá ættingjum á Akureyri og hitt frá vinafólki á Seyðisfirði. Takk Grétar og Lauga, gaman að fá fréttir af ykkur og takk líka Birna og Kiddi :) Svo kom pakki frá mömmu og hann var nú aldeilis gaman að opna. Laufabrauð (því miður allt í molum, en gott engu að síður ;), litlar kringlur og harðfiskur, pakkar og fleiri jólakort. Ég vona að mér verði fyrirgefið þó ég hafi tekið öll kortin upp og lesið þau. Venjulega reyni ég nú að láta það vera, safna kortunum í póstpoka og svo eru þau opnuð og lesin á aðfangadagskvöld eða á jóladag.
Hér í Englandi virðist tíðkast að stilla jólakortunum upp og hafa þau til sýnis í kringum jólin. Mér finnst það skemmtilegur siður því mörg kortin eru svo falleg, ekki síst þau sem fólk hefur föndrað sjálft eða eru með ljósmyndum. Við höfum því ákveðið að prófa þetta og erum búin að raða kortum í hillur og á borð og einnig ætlum við að prófa að nota þau til að skreyta jólatréð. Við tókum nánast ekkert jólaskraut með okkur og höfum ekki áhuga á að kaupa hérna eitthvert ódýrt drasl sem myndi svo bara verða skilið eftir. Jólakort munu því gegna stærra hlutverki en venjulega á okkar heimili þetta árið. Vonandi verða allir duglegir að senda okkur kort þó við séum ekki í venjulega heimilisfanginu okkar, pósturinn á Seyðisfirði er svo elskulegur að áframsenda póstinn okkar hingað og svo má sjá enska heimilisfangið okkar hér á síðunni ofarlega til hægri.P.s. Mér finnst líka gaman að fá jólakveðjur í tölvunni, þó það sé ekki hægt að hengja hana á jólatréð...


10 ummæli:
Ertu búin að opna jólakortin Bára Mjöll??
En ég er að hugsa um að stela þessari hugmynd þinni, þ.e. nota jólakortin sem jólaskraut. En við munum ekki opna þau fyrr en á aðfangadagskvöld. Ætli við tökum þau ekki bara með okkur á veitingastaðinn sem við förum á og opnum þau þar? Gæti verið sniðug hugmynd :)´
Já Elva, ég er búin að opna jólakortin! Mig vantaði eitthvað í hillurnar og svo eru þau svo jólaleg :) Þér er velkomið að stela hugmyndinni - en ætlið þið á veitingastað á aðfangadagskvöld!!
Því miður vorum við ekki búin að fá jólakortamyndirnar þegar ég sendi kortið ykkar...
Já, við ætlum út að borða... pínu skrítið, ég veit. En það er hvort eð er ekki haldið hátíðlegt hérna - og sjálfsagt verður stuð á barnum á neðri hæðinni, svo það mun ekki koma manni í jólaskap. En við verðum hérna heima á jóladagskvöld, þá verður barinn lokaður ;)
Hvað borðið þið á aðfangadag?
Sæl Bára, takk fyrir kveðjuna á síðuna hjá strákunum. Erum í Botnahlíðinni í góðu yfirlæti, förum svo yfir í dag. Það er voða jólalegt alstaðar. Kristján Jakob fannst jólasveinarnir hjá Snorra (við hliðina á barnaskólanum) vera að brjótast út úr húsinu hans :) Það er svo fyndið hvernig hann orðar hlutina. Já við erum orðin spennt fyrir aðfangadagskvöldi, verðum hér á seyðis hjá mömmu og co og ömmu og afa. Við erum búin að semja við Danna að fá að gista í Bröttuhlíðinni ef veðrið verður leiðinlegt. Jæja, biðjum að heilsa öllum og hafið það nú sem allra best um jólin. Það er líka gaman að breyta til og prófa nýjar hefðir :) (ég var líka ein jól í Cambridge hjá Nínu) Bestu jólakveðjur frá Helgu Dögg og strákunum
hæ hæ
sendi smá aukajólakveðjur frá Kína ;) hér gengur bara allt ljómandi vel, mengun frekar mikil þó hér í Beijing, matur hefur komið furðu mikið á óvart og viðkvæma görnin mín bara staðið sig með stakri prýði :) (enn sem komið er)
Hey - það er ekkert að því að opna jólakortin um leið og þau berast - þó maður sé í útlandinu :) Ég opna mín alltaf strax (þrátt fyrir hálfgerða vandlætingu hjá mörgum hehe) en mér finnst þetta vera hluti af jólabiðinni ;)
Bestu kveðjur til ykkar allra og norður í Mývatnssveit ;)
Kristbjörg og Svenni í Beijing ;)
Elva; við erum ekki búin að ákveða annað en að hafa möndlugraut, það verða alla vega ekki rjúpur... en við fáum gæs á jóladag. Mér finnst bara flott hjá ykkur að fara út að borða á aðfangadagskvöld, þetta verða öðruvísi jól hjá okkur núna en engin ástæða til annars en að fagna!
Takk fyrir kveðjuna Helga Dögg, við sláum örugglega á þráðinn til ykkar í Botnahlíðina á aðfangadagskvöld. Og það er um að gera að nota aðstöðuna í Brattahlíð ef þið verðið veðurteppt. Btw við erum búin að taka húsið af sölu :)
Gaman að fá kveðju frá Kína, Kristbjörg, gott að heyra að allt er í fína (í Kína ;). Alveg sammála þessu með jólakortin, mér finnst svo notalegt að hafa þau hérna allt í kringum mig og njóta þeirra á aðventunni. Gangi ykkur alveg rosalega vel, bið líka að heilsa Örnólfi og Fríðu.
Sit hér við tölvuna og er að klára nokkur verkefni. Það rættist úr kirkjukórnum þó svo okkur vanti karlana. við erum búin að gera kirkjuna hreina og fína, og hún skreytt að vanda. Veðrið er skrýtið, og er útlit fyrir rauð jól að þessu sinni. Bíðum bara eftir Jóni Kolbeini þá geta jólin komið. það verður gaman að hafa Helgu Dögg og hennar fólk og mömmu og pabba hjá okkur á aðfangadagskvöld.
Hafið það sem allra best og verið góð hvert við annað.
kv. Ólafía
Elsku Bára Mjöll. Gaman að skoða síðuna þína og skemmtileg hugmynd með jólakortin :)
Við erum nú komin í sveitina og teljum okkur vera heppin þar sem veðrið hefur ekki verið með besta móti hér á landi undanfarið!
Erum að leggja lokahönd á jólaundirbúninginn. Eldaður verður jólagrautur á eftir og möndlugjöf í boði og síðan fáum við rjúpur í matinn í kvöld. Yndislegt :) Þetta er þó svolítið skrítið hér í kotinu, þar sem vantar skötuhjúin Elvu og Hannes sem halda sín jól í sól og sumaryl :)
En við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og hafiði það sem allra best yfir hátíðirnar. Hugur okkar er hjá ykkur sem og öðrum er halda jólin að þessu sinni fjærri heimalandi sínu.
Sæl öllsömul.Auka jólakveðja frá okkur hérna á Húsavík.Hér er 10 stiga hiti og hvasst!!Ekki mjög jólalegt.Hafið það gott á komandi dögum.Kveðja Alda
Gott að rættist úr kirkjukórnum Ólafía, heyrum í ykkur í kvöld.
Gleðileg jól til ykkar allra elsku Inga mín og Alda, við hugsum líka til ykkar.
Skrifa ummæli