Það er aðfangadagur. Jólatréð okkar stendur við gluggann fagurlega skreytt með jólakortum frá vinum og ættingjum og rauðri stjörnu/tungl/sól seríu (alveg eins og við eigum heima) sem Nína var svo indæl að lána okkur. Það er bara nokkuð fallegt, finnst okkur. Í útvarpinu hljómar jólakonsert "Festival of 9 Lessons and Carols" frá Chapel of King's College hér í Cambridge, alveg yndislegt. Ég var að enda við að pakka inn síðustu jólagjöfunum og þeir feðgar voru að koma heim úr golfi. Bráðum förum við að elda möndlugrautinn, en hann verður ekki borðaður fyrr en í kvöld þegar við komum heim úr jólamessu í dómkirkjunni í Ely. Möndlugjöfina má opna þá og Stefán hefur fengið leyfi til að opna eina jólagjöf í kvöld en aðrar gjafir verða ekki opnaðar fyrr en á morgun. Við ætlum að eyða deginum hjá Nínu og Paul, opna pakka, fara í leiki og borða gæs og svínakjöt, osta, Tiramisu og ís. Já og trúlega eitthvað nammi líka og hver veit hvað...Á gamlársdag ætlum við síðan til London og verðum á fínu Hilton hóteli um áramótin - það verður sko fjör!
Sendum ykkur öllum hugheilar óskir um gleðilega hátíð ljóss og friðar.


10 ummæli:
Bestu óskir um gleðileg jól frá öllum í Birkihrauni 11.
Gleðilega hátíð !
Gleðileg jól elsku frænka og takk fyrir jólakortið! Hafið það gott um hátíðirnar og ég bið að heilsa Jóhanni og Stefáni.
Það verður örugglega gaman að upplifa áramótin í London!
Gleðileg jól sömuleiðis til ykkar elskurnar! Njótið þess að vera til og farið vel með ykkur. Já, það verður örugglega geggjað í London baby ;)
Gleðileg jól og takk fyrir jólakortið. Kær kveðja héðan úr Eyjafirðinum. Kata
Gleðileg jól, kæra fjölskylda og takk kærlega fyrir kortið og fallegu myndina.
Ég var heldur sein með kortin þetta árið, engin mynd og ekkert fréttabréf svo ég ákvað að senda ykkur nokkrar línur í staðinn.
Hér er mjög gott veður, en enginn snjór.
Ég kíki oft hér inn á síðuna en hef ekki skrifað neitt fyrr en kannski veður breyting á því.
Gleðilegt ár og megi næsta ár verða ykkur gott til náms og fleiri starfa.
Gangi þér vel í náminu, Bára Mjöll mín.
Jólakveðja
Hrafnhildur, Jón Ingi og aðrir í Bergholti.
Gleðileg jól öll sömul og takk fyrir okkur. Ég er ekki búin að hlusta á diskinn, græjurnar biluðu í gær. Flott jólatré hjá ykkur enda sýnist mér það vera Normansþinur eins og við erum allaf með. Jólin hafa verið friðsöm og góð. Enginn snjór, bara hlýindi og fallegt veður. Rjúpurnar voru þvílíkt góðar og krústederne aldrei verið betri. Best af öllu var að hafa öll börnin sín saman á aðfangadag og foreldra sína líka. Gæti ekki verið betra. Söknum ykkar og það verður skrýtið að fá ekki forréttinn ykkar um áramótin.
Verið góð við hvert annað.
kv. Ólafía
Takk sömuleiðis fyrir þetta skemmtilega kort Kata mín. Eruð þið með svona fínan prentara eða létuð þið prenta það einhvers staðar?
Kæra Hrafnhildur, takk fyrir þessar línur - gaman að þú skyldir skrifa hjá mér, endilega haltu því áfram! Bestu kveðjur í Voga.
Takk líka fyrir diskinn Ólafía - og það passar, þetta er Normansþinur sem tekur sig bara nokkuð vel út skreyttur með jólakortum ;) Söknum ykkar líka, ekki síst nú um jólin, en verðum með ykkur næst!
Takk,við erum líka alveg hæstánægð með jólakortið. Kunningi hans JÓH sem er með litla prentstofu á Ak. prentaði þetta fyrir okkur.
Frábært, en sniðugt hjá ykkur Kata. Áramótakveðjur í Eyjafjarðarsveit.
Skrifa ummæli