27.11.06
Tilkynning - er á lífi
Bara að láta vita örsnöggt af mér. Hef því miður ekki tíma til að blogga fyrr en ég er búin að skila ritgerðinni á föstudaginn. Hún er annars alveg að drepa mig... Vitið þið hvað 6000 orð eru margar blaðsíður? Svona 18 og svo er heimildaskráin rúmar 3 - kem vonandi úr kafi um næstu helgi. Hafið það gott þangað til :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


7 ummæli:
passaðu þig bara að drukkna ekki :)
Hlakka til að skjá þig aftur þegar þessu er aflokið.
Baráttukveðjur!!
Þar sem ég var hátt í tvo áratugi á skólabekk, þá tel ég mig hafa fundið ráð sem gæti gagnast þér.
Stilltu línubilið á "dobble", og þarna settu font size í svona sextán. Þetta virkaði alltaf í denn ;o)
Takk fyrir 'tipsið' Hannes, en ég er hrædd um að það dugi ekki í þessu tilfelli þar sem það er orðafjöldinn sem gildir en ekki blaðsíðufjöldinn. Annars er þetta alveg að hafast, á bara eftir að lesa lokayfirlesturinn og reyna að troða inn ca. 100 orðum í viðbót og þá er þetta komið!
Bý einnig yfir ráði þegar kemur að orðaforða. Þá er ráð að lengja setningar, og tafsa mjög svo á því sem maður vildi sagt hafa...
... Alltíeinu dettur mér í hug
www.smurfalizer.com í því samhengi (óbeint), en meðan sú vefsíða var og hét, þá var hægt að setja þar inn texta (copy/paste), styðja á hnapp, og fá hann út á strumpamáli...
... tengingin er sú, að ef það er hægt að gera forrit sem strumpar textann manns, þá er örugglega hægt að gera forrit sem lengir ritgerðina manns.
Þú ættir að leita til bróður þíns, ath. hvort hann riggar ekki upp svona lengingarforriti fyrir þig ...
;o)
Dugleg stelpa og svo á ensku líka!
heyrumst,
Hahaha, Hannes þú ert óborganlegur :D hef þetta bak við eyrað þegar ég fer að skrifa næstu ritgerð sem á að skila í mars...
Takk Helle, þú er nú líka ekkert smá dugleg :)
Hannes, það mætti nú alveg velta því fyrir sér að skoða möguleikann á því að útbúa eitthvað sem hugsanlega kæmi til greina að mætti nota í þessu samhengi... ;-)
Skrifa ummæli