19.11.06

Á leið í skólann á laugardegi

Eftir tvo rigningarmorgna í röð, rann upp laugardagur bjartur og fagur. Ég var búin að ákveða að fara í skólann til að vinna í ritgerðinni og í þetta sinn mundi ég eftir myndavélinni áður en ég lagði af stað. Maður verður að standa sig þegar maður fær svona áskoranir! En hér kemur ferðasagan:

Garðurinn hinum megin við veginn fyrir framan hina blokkina - þar sem sundlaugin og leiktækin eru. Ég hjóla í gegnum hann en yfirleitt ekki eftir þessum stíg.

Þennan stíg nota ég - og kýrnar eru líka hrifnar af honum. Nú er búið að setja þær inn, en enn má sjá leifar af kúadellunum sem þær hafa skilið eftir.

Komin í gegnum garðinn. Mikið af laufblöðum á jörðinni og logandi haustlitir hvert sem litið er. Þá þarf að fara yfir stór gatnamót, þau fyrstu af þremur á leiðinni.

Brookland Avenue, löng og bein gata með flottum trjágöngum sem njóta sín ekki alveg á svona mynd. Einhver frægur fótboltamaður (sem ég man ekki núna hvað heitir) á víst nokkrar íbúðir hérna, sem hann leigir út og græðir vel...

Hér beygi ég til hægri, upp á brú yfir járnbrautarsporið. Þetta er mesta brekkan á leiðinni og venjulega fær maður sólina beint í augun á leiðinni upp - getur verið strembið!

Skólinn minn er síðan aðeins neðar við sömu götu. Hér sat ég í gær í 6-7 tíma og miðaði bara vel með ritgerðina, takk.

Þegar ég fór heim kl. 5, var næstum orðið dimmt. Þá er eins gott að hafa munað eftir ljósunum.

Og svona lítur hún þá út, leiðin sem ég fer á hverjum degi í skólann. Við hittum svo Nínu og Paul um kvöldið og borðuðum með þeim pizzu á Pizza Express. Það var góður endir á góðum degi.
-
Í dag er annar fallegur dagur, sól og hitinn kominn í 10 stig núna kl. rúmlega hálf tvö. Það var þó heldur kaldara í morgun, en ekkert á við heima á Fróni. Þar eru tveggja stafa mínustölur algengar, að mér skilst! Ég er ein heima þessa stundina, Stefán er að keppa í fótbolta og Jóhann fór með honum eins og venjulega. Ég ætla að taka það rólega, kannski dunda mér eitthvað í ritgerðinni og fara svo jafnvel aðeins í bæinn þegar þeir koma heim. Það er nefnilega komið út nýtt tölublað af Yoga Journal.

6 ummæli:

Elva sagði...

Gaman að þú skyldir taka áskoruninni :)

Greinilega mjög falleg leið sem þú ferð á hverjum degi. Takk fyrir þessar myndir!! Já og takk fyrir tölvupóstinn.

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ,
Fannst ég knúin til að láta vita að ég hafi stoppað hér við á vafri mínu um netheimnn.
Datt inná síðuna þína svona... Harpa Hrönn lagi inn kveðju á mína síðu með slóða á hennar síðu, fór á hana, þar fann ég Jóhönnu Björgu, á Jóhönnu fann ég Sollu (mömmu hennar) og á Sollu fann ég þig...
Vildi annars bara kasta kveðju, ég bý á Daytona Beach, Florida þar sem ég er að verða flugkennari næstu tvö árin.
Kveðja,
fyrrum nemandi þinn,
Evert Ingjaldsson

Bára Mjöll sagði...

Já Elva, það er óhætt að segja að Cambridge er fallegur bær. Ég bara elska tré...

Og sæll Evert, gaman að heyra frá þér! Takk fyrir að kvitta (ég er ekki viss um að allir séu svo kurteisir sem detta hingað inn). Til hamingju með að vera orðinn flugkennari og hafðu það gott í Florida :)

Nafnlaus sagði...

Reyndi að hringja í dag en enginn heima. Erum komin á klakann eftir velheppnaða Kúbuferð.
kv.úr snjónum
Ólafía

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ, var bara að athuga hvort það væri ný færsla, bið að heilsa. Kveðja Helga Dögg

Bára Mjöll sagði...

Takk fyrir kveðjurnar mæðgur og velkomin heim Ólafía. Hef lítinn tíma til annars en að vinna í ritgerðinni, en er alveg að verða búin :9 og skrifa þá meira.