7.11.06

Flugeldasýning og brenna

Það var Bonfire Night hérna í Bretaveldi um helgina. Þá keppist fólk við að skjóta upp flugeldum og er með brennur út um allt. Minnir helst á gamlárskvöld. Tilefnið er hins vegar að fyrir um 400 árum síðan reyndi Guy nokkur Fawkes að sprengja þinghúsið í London, sem mistókst og upp frá því hefur hann verið brenndur á báli á hverju einasta ári. Hér í Cambridge standa borgaryfirvöld fyrir brennu og glæsilegri flugeldasýningu. Við fórum að horfa á og það verður að segjast að sýningin sló alla vega út flugeldasýningu björgunarsveitarinnar á Seyðisfirði um síðustu áramót. Á myndinni eru talið frá vinstri: Jóhann, Stefán, Jóhanna frænka Lilju vinkonu, Jimmy kærasti hennar, Paul og Nína á bak við handlegginn á Paul. Jóhanna bauð okkur heim til þeirra fyrir sýninguna og svo fórum við öll saman út að borða á indverska veitingastaðinn í Norfolk Street á eftir. Mjög skemmtilegt kvöld.

Auda og Níels komu í dag og ætla að stoppa í viku. Þau komu aldeilis færandi hendi; við fengum m.a. pylsur og pylsubrauð, remúlaði, flatbrauð, hangikjöt, harðfisk og lýsi. Það var því veisla hjá okkur í kvöld :) Við erum svo öll boðin í mat hjá Nínu og Paul annað kvöld.

Nú er pressan farin að aukast í skólanum hjá mér, ég á að skila ritgerð fyrir jólafrí 1. des. en það er svo mikið að lesa og alls konar verkefni að mér finnst ég aldrei hafa tíma fyrir ritgerðina. Eiginlega ætti ég akkúrat núna að vera að vinna í verkefni um gagnrýninn lestur og gagnrýna ritun... best að vinda sér í það.

See you later.

9 ummæli:

Elva sagði...

Hæ, hó.

Hér á Nýja-Sjálandi er líka haldið upp á þennan dag. Hér var verið að selja flugelda út um allt. Við Hannes hins vegar misstum gjörsamlega af flugeldasýningunum hér í kring. Vorum held ég bara komin upp í rúm svei mér þá. En það er verið að tala um núna að hætta að leyfa almenningi að kaupa flugelda, það urðu víst svo mörg slys.

Jæja, vertu dugleg að læra elsku frænka. En vonandi verðuru samt ekki svo upptekin að þú hafir ekki tíma til að blogga endrum og sinnum :)

Pylsukveðjur,
Elva

Thorarinn sagði...

Við fórum að horfa á brennu og flugelda í Castle Donington hér um árið. Það eina eftirminnilega frá því kvöldi var drullusvaðið á túninu. :-|

Hvernig er það, eruð þið búin að útvega ykkur "íslenskt" fjöltengi? Mundi allt í einu eftir þessu í gær eða fyrradag...

Bára Mjöll sagði...

Hæ Elva - þessi siður hefur líklega smitast til Nýja-Sjálands í gegnum gamla Samveldið. Það var verið að skjóta upp flugeldum hérna í marga daga í kringum helgina, ég hef samt ekki heyrt um nema eitt slys, en það var ekki mjög fallegt (snerti afturendann á manni nokkrum í Sunderland). Trúlega hafa þau verið fleiri.

Og Pálmi - við létum senda okkur eitt stykki "íslenskt" fjöltengi og höfum látið það duga ásamt með nokkrum millistykkjum. Nú erum við líka búin að kaupa okkur tvö stk. "bresk", en takk fyrir að spyrja :)

Nafnlaus sagði...

Heyrðu það eru nú bara búnir að vera flugeldar hérna úti um allt á hverju kvöldi síðan á föstudagskvöldið fyrir viku. Takk fyrir að skrifa samt af hverju þetta er... ég var eitthvað að takmarkað að hlusta á mömmuna hjá mér þegar hún var að segja mér þessa sögu. Hehe.

Þau voru frekar skúffuð á að ég skyldi ekki vera spenntari yfir flugeldunum, ég held þau haldi að við höfum ekki svona heima. Haha. Ég veit ekki við hverju þau bjuggust.

Nafnlaus sagði...

Sæl og blessuð, ég man eftir þessu frá því hérna um árið!! Held nú samt að mér finnist gamlárskvöld á Islandi betra!Kveðja Alda

Bára Mjöll sagði...

Hei, hvaða mórall er þetta! Flugeldasýningin var mjög flott! Í alvöru, það komu 25 þúsund manns að horfa á hana og svo var líka tívolí... Þetta var auðvitað ekki gamlárskvöld, við eigum eftir að sjá hvernig það er hér - efast samt einhvern veginn um að það slái út gamlárskvöld á Íslandi ;)

Thorarinn sagði...

Castle Donington er nú ekki nema ca. 7.000 manna bær (Cambridge líklega um eða yfir 110.000) þannig að það er ekki líku saman að jafna. Hilton (í Derbyshire) er svo ennþá minni en Castle D. "Brennan" þar minnti meira á varðeld...

Nafnlaus sagði...

Sæl Bára Mjöll mín. Langt síðan ég hef litið við á síðunni þinni. Gaman að heyra hvað á dagana hefur drifið hjá ykkur.
Já, ég minnist Guy Fawkes dags ´66 og ´68 í London. Í þá daga var brennan ekki fullkomin nema búin hefði verið til eftirlíking af Guy (ú spýtum) og hana átti að setja á topp brennunnar og menn að njóta þess að sjá hann brenna!

Nóg um það, hér geysar brjáluð stórhríð. Ekkert Yoga í dag hjá okkur. Vond spá næstu daga. Annars bara gott frá okkur.
Bestu kveðjur til ykkar allra.
Ásdís

Bára Mjöll sagði...

Ok Pálmi, ég skal ekki vera reið ;)

Ég á líka minningar frá þessum degi síðan ég var au-pair hérna '83 og þær eru ansi skemmtilegar því mér var boðið í mat á fínum herragarði þar sem menn stóðu upp og sungu þjóðsönginn áður en byrjað var að borða!

Takk fyrir innlitið Ásdís (og allir) ég verð kannski að biðja Elvu og Hannes um að setja aftur upp hjá sér krækju á síðuna mína svo þið Inga kíkið oftar við :)