Það er loksins orðið haustlegt, eða þannig. Þessi mynd var tekin út um stofugluggann okkar fyrir 5 dögum síðan og eins og sjá má þá er laufið heldur farið að þynnast á trjánum og slatti á jörðinni. Þeir voru að slá blettinn hér fyrir utan í morgun og þó að ekki hafi nú verið mikið gras, þá kom þessi líka ilmandi heylykt inn um gluggann. En það er alveg fullt fullt af laufblöðum á göngu/hjólastígnum í garðinum sem ég hjóla um á leiðinni í skólann og þar eru líka komnir haustlitir. Ég hugsa stundum þegar ég er á leiðinni, að gaman væri að vera með myndavélina en man svo aldrei eftir því áður en ég legg af stað að taka hana með. Vonandi kemur samt að því einn daginn. Það er eins og það sé september og erfitt að átta sig á því að aðeins eru tæpar 6 vikur til jóla!Er á leið í háttinn, hef verið að vinna frameftir í ritgerðinni undanfarin kvöld en ætla að leyfa mér að hátta snemma einu sinni. Mikið verð ég fegin 1. des. þegar ég verð búin að skila...
Catch you later.


7 ummæli:
Sæl Bára mín, takk kærlega fyrir kveðjuna á heimasíðu strákana. Hér snjóar bara og snjóar og það er líka hvasst. Já það er ótrúlega stutt í jólin. Biðjum að heilsa öllum, kær kveðja Helga Dögg og strákarnir
".. að gaman væri að vera með myndavélina.." - heyrðu, það þýðir ekkert að segja svona! ;-)
Það var ekkert Helga, ég kíki alltaf annað slagið á síðuna ykkar þó ég sé nú ekki dugleg að kvitta. Það er svo gaman að skoða myndirnar af strákunum þínum :)
Já Pálmi, ég átti þetta nú skilið, hehe. Ég var komin hálfa leið í skólann í morgun þegar ég fattaði að ég hafði auðvitað gleymt myndavélinni... reyni aftur í fyrramálið, lofa!
Sammála Pálma - þú verður bara að setja myndavélina við útidyrnar. Það er eina leiðin til að muna eftir henni :)
Annars var ég búin að gera nokkrar tilraunir til að senda þér póst. En svo fattaði ég áðan að ég hafði notað vitlaust netfang. Ég vona að þú sért búin að fá póstinn núna.
Bestu kveðjur!!
Sæl kæra frænka.
Gaman að fylgjast með ykkur og fín íbúðin ykkar :) Það fer alveg örugglega bara vel um ykkur þarna.
Það er greinilega nóg að gera hjá þér en vonandi getur þú klárað ritgerðina fyrir 1.des.
Er ekki yndislegt að geta svo bara skroppið til Frakklands?? Frábært!
Hjá mér er rosalega mikið að gera og ég verð fegin að fara í jólafrí en tíminn hefur líka flogið. Ég held ég hafi aldrei upplifað svona stutt haust og svo eru jólin að koma!!
Læt heyra í mér aftur.
Hafið þið það öll sem best en hér á Frónni er sannur vetur núna :)
Sæl frænka.
Var að reyna að senda línu en það fór ekki í gegn. Ætla að athuga hvort þetta fer og því verður þetta ekki lengra hjá mér....
Takk fyrir bréfið Elva, það skilaði sér á gmailið mitt.
Gaman að heyra í þér Inga! Og gott að vita að þú er hress. Við þurfum endilega að tala betur saman, þú hefur líklega aldrei tíma til að vera á msn?
Skrifa ummæli