Þetta var stutt skíðavertíð. Nú hefur ekkert verið hægt að fara á skíði vegna hlýinda og hvassviðris síðan á mánudaginn var og snjórinn bókstaflega gufar upp. Eða rennur í burtu - lækir og pollar út um allt. Við Stefán skruppum upp á Hérað í dag til að fara í Bónus (hvað annað) og það var ekki sjón að sjá skíðabrekkurnar í Stafdal. Auð jörð komin upp úr á mörgum stöðum og snjórinn orðinn skítugur og ljótur. Það var bara eins og það væri komið fram í apríl eða maí!
En það er víst janúar núna og því vonar maður auðvitað að það eigi eftir að snjóa meira í vetur.
Þorrablótið um síðustu helgi var mjög vel heppnað. Maturinn sem Þorrablótsnefndin bauð upp á var fínn, nema kannski hangikjötið... en skemmtidagskráin var mjög góð og þar klikkaði ekkert. Notast var við nýjustu tækni og sumt var meira að segja tekið upp fyrirfram og sýnt á tjaldi. Það var samt alveg jafnskemmtilegt svoleiðis og svo var fjöldasöngurinn sérlega vel heppnaður undir stjórn Gylfa Gunnars.
En við Jóhann endumst aldrei mjög lengi á böllum og vorum komin heim um tvöleytið. Hljómsveitin Einsdæmi er svo sem alveg ágæt og þeir voru að reyna að vera hressir, en þeir eru bara orðnir svolítið þreyttir. En við skemmtum okkur samt sem áður mjög vel og vorum ekki valin í næstu nefnd, merkilegt nokk. Það verður sem sagt sami hnúturinn í maganum á næsta Þorrablóti þegar tilkynnt verður um nýja nefnd.
29.1.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli