22.1.05

Þorrablót

Það er nú meira hvað tíminn líður hratt. Enn er kominn laugardagur og þorrablót Seyðfirðinga í kvöld. Við ætlum að sjálfsögðu að fara, alltaf gaman að borða þorramati í góðra vina hópi og horfa á liðið ár gert upp á spaugilegan hátt. Nokkur undanfarin ár hefur verið sagt við okkur að nú hljóti að vera komin röðin að okkur að vera í næstu þorrablótsnefnd. Ekki hefur það ræst hingað til, en það gæti nú farið að koma að því. Síðast vorum við í nefndinni árið 1997 minnir mig.

Vikan sem er að líða var ósköp venjuleg vika: Nóg að gera í vinnunni, ég fór þrisvar í ræktina og tvisvar í yoga, á kóræfingu og á undirbúningsfund vegna spurningakeppni skólans sem á að hefjast eftir 3 vikur. Það er 9. bekkur sem heldur keppnina og rennur allur ágóðinn í ferðasjóð bekkjarins. Mikil törn framundan þar, en vonandi skemmtileg.

Engin ummæli: