10.1.05

Enchanting Everglades

Er að hlusta á disk sem ég keypti í dag hjá Turnbræðrum. Á honum eru náttúruhljóð frá Everglades þjóðgarðinum í Florida með ljúfri tónlist undir og hann er alveg yndislegur. Hvað er betra eftir langan og strangan dag en að hátta snemma og hlusta á róandi tónlist á meðan tékkað er á póstinum og blogginu? Svo leitaði ég að Everglades á Google og skoðaði nokkrar myndir þaðan - hvernig fór maður að áður en Netið kom?!

Á morgun verður annar langur og strangur dagur; kenna 5 tíma, hádegismatur hjá tengdó, kenna 2 tíma, vinna til 5, fara þá í ræktina að hitta Díönu sem ætlar að útbúa nýtt prógramm fyrir mig og mæla mig (!) og svo heim að hitta Stefán í heimanámstímanum okkar. Verð að muna að borða ekki yfir mig hjá tengdó fyrst ég er að fara í þessa mælingu... Jæja, kannski ekki svo langur og strangur dagur og meira að segja frí eftir kvöldmat :)

Engin ummæli: