Það er komið að mínum vikulega pistli hér á blogginu. Ég virðist vera að skrifa hérna um það bil einu sinni í viku og það er oftast á laugardögum eða laugardagskvöldum. Segir kannski mest um skemmtanalífið mitt... hmmm. Jæja, þessi vika hefur einkennst af veikindum.
Karlmennirnir á heimilinu hafa verið kvefaðir undanfarið og um síðustu helgi byrjaði ég að finna fyrir því líka. Á mánudaginn fór ég svo heim úr vinnunni og lagðist í rúmið með kvef, hálsbólgu og hita. Þar hef ég síðan legið alla vikuna. Alveg þangað til í gærmorgun að ég druslaðist loks í skólann. Ekki er hægt að láta 10. bekk missa af of mörgum íslenskutímum. En sem sagt engin líkamsrækt, yoga, kóræfing, fundir eða neitt. Það sem bjargaði vikunni hjá mér var Da Vinci lykillinn, frábær bók.
Helga Dögg bauð okkur í mat í gærkveldi í tilefni af þrítugsafmælinu sínu um síðustu helgi. Það var virkilega gaman að heimsækja þau og flottur matur sem þau buðu upp á. Kristján Jakob er alltaf sami orkuboltinn og sjaldan leiðinlegt þar sem hann er nálægt.
Þessa stundina látum við hjónin fara vel um okkur í stofusófanum fyrir framan sjónvarpið (og fartölvuna) en sonurinn liggur inni í sínu herbergi og er sjálfsagt í PlayStation. Hann var að keppa í fótbolta á Egilsstöðum í allan dag og komst því ekki á skíðaæfingu, sem er hálfgerð synd því það var opið í Stafdal í fyrsta sinn í langan tíma. Hann kemst vonandi á morgun. Áður en snjórinn fer aftur.
5.2.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli