15.1.05

Stafdalur

Skíðasvæðið okkar í Stafdal var í dag opnað í fyrsta sinn á þessum vetri og var þá komið að því að prófa nýju skíðin sem Stefán fékk í jólagjöf. Við skruppum fyrst í verslunarferð upp á Hérað (að kaupa gjafabréf fyrir PlayStation 2) og svo skildi ég hann eftir í fjallinu á bakaleiðinni.

Við hittum Guðjón, Ólafíu og Kristján ásamt fleirum og smelltum einni mynd af Ólafíu að leggja af stað upp í fjall eftir nestishlé.

Engin ummæli: