12.4.07

Í páskafríinu...

Jæja, best að standa við stóru orðin og koma með ferðasöguna og allt hitt sem ég ætlaði að blogga um. Ég held ég taki bara dagbókarformið á þetta og láti myndirnar líka tala. Byrja á páskadegi og fer svo aftur á bak í tíma, en við höfum greinilega brallað ýmislegt í páskafríinu. Munið að það er hægt að stækka myndirnar með því að smella á þær.
8. apríl páskadagur
Lögðum af stað laust fyrir hádegi á tveimur bílum og stefndum í átt til strandar í Norður-Norfolk. Þar er óvenjumikill munur á flóði og fjöru og virtist vera háfjara þegar við komum á svæðið því bátar voru á þurru landi og sjórinn hvergi sjáanlegur. Eftir dálitla leit og góða gönguferð römbuðum við á þessa líka fínu strönd og sáum hafið teygja sig svo langt sem augað eygði. Þá urðu allir mjög glaðir. Áður en við lögðum af stað heimleiðis fengum við okkur sannkallaða sjávarréttamáltíð á pöbbnum Dun Cow í bænum Salthouse. Keyrðum síðan í ótrúlega fallegri síðdegisbirtu í gegnum sveitir og skóga Norfolk, Suffolk og Cambridgeshire. Takk fyrir skemmtilegan dag Nína, Paul, Björn og Regína!

7. apríl laugardagur fyrir páska
Drifum okkur loksins í grasagarð háskólans eða Cambridge University Botanic Garden. Ég er búin að vera á leiðinni þangað alveg síðan við komum hingað í fyrrahaust, en ég hafði farið í þennan garð fyrir tæpum 24 árum þegar ég var au-pair í Hertfordshire, ekki langt héðan. Skemmst er frá því að segja að garðurinn er ótrúlega flottur og hafði sko ekki farið aftur frá því ég var þar síðast. Nú er t.d. komið stærðar gróðurhús með alveg geggjuðum regnskógi sem ekki var þarna þá. Á myndinni sést inngangurinn í þetta gróðurhús, sem er nokkurn veginn eins og ég myndi vilja hafa heima hjá mér. Við hétum því að fara aftur þegar rósirnar eru sprungnar út og allt komið í blóma, en ekki er nú langt að fara því þessi garður er bara hérna rétt hinum megin við hornið.

5. apríl skírdagur
Jóhann var að vinna en við Stefán fórum í bæinn og kíktum í gallerí og á safn sem heitir Kettle's Yard, eins og áður hefur komið fram. Argentínskur listamaður var að sýna í sýningarsalnum og náði hann nú ekki að heilla okkur neitt að ráði en safnið, sem er fyrrverandi heimili mikils listunnanda, var miklu flottara. Við hefðum alveg verið til í að flytja bara inn! Síðar kom í ljós að Paul hefur unnið mikið við að gera upp húsgögnin þarna, aðallega stólana og skildist mér að hann hefði sett saman skrá um alla stólana og uppruna þeirra.

Um kvöldið fórum við í keilu með Birni og Regínu, sem var rosa fjör og enduðum svo á einni salíbunu í þessu líka svaðalega tívolítæki. Á myndinni má rétt greina okkur Regínu á fleygiferð, en til viðbótar við hreyfingu og snúninga armanna þá snerust sætin líka í hringi (held ég). Mér fannst ég a.m.k. mest vera hangandi á haus. Mjög hressandi...

Þá eru bara eftir myndirnar úr Íslendingapartýinu. Ég held ég setji þær við færsluna þar sem ég segi frá því, þar sem þetta er orðið þvílíkt maraþonblogg. Endilega kíkið á þær :) Framundan er svo ferðalag til Cornwall í næstu viku, en við ætlum að fara þangað með mömmu og pabba. Það er mikið búið að hlakka til, bæði að fá þau í heimsókn og að fara í þessa ferð.

3 ummæli:

Elva sagði...

Vá, mikið stuð og fjör um páskana hjá ykkur. Gaman að því.

Ég gaf annars okkar páskaeggjum einkunn í síðustu færslu. Í stuttu máli sagt - ekki góð egg!

Nafnlaus sagði...

Fínar myndir úr páskafríinu ykkar. Hér er gott veður, núna kl.8 á laugardagsmorgni er 10° hiti, verður frábært í dag vonandi. Bið að heilsa í bili, kv. Helga Dögg

Bára Mjöll sagði...

Já, við höfum bara haft það gott og skemmtilegt í páskafríinu, takk :) Á morgun byrjar svo alvaran aftur hjá mér en Stefán er í fríi fram á þriðjudag. Það gæti orðið erfitt að halda sig að verki því 'mini' hitabylgjan sem hefur verið hér um helgina á að halda áfram eitthvað fram í vikuna a.m.k.