14.1.07

BETT

Fór aftur til London í gær. Í þetta sinn í félagsskap eiginmanns og sonar, en þeir voru svo elskulegir að fylgja mér á BETT - The Educational Technology Show, sýningu um upplýsingatækni í skólastarfi. Svolítið svipuð og UT - ráðstefnurnar á Íslandi, bara miklu stærri öll í sniðum. Ég var að vonast til að geta viðað að mér efni og upplýsingum sem gætu nýst mér í lokaverkefninu mínu. Sýningin var mjög skemmtileg og stóð alveg undir væntingum. Við eyddum nokkrum klukkutímum í að skoða alls konar dót og tækni og söfnuðum fullt af bæklingum, blöðum, geisladiskum, pennum o.s.frv. í poka. Eins gott að ég var með strákana með mér til að bera allt dótið, ég hefði aldrei komist ein með það allt heim!

Þeir feðgar fóru síðan snemma á fætur í morgun til að fara á fótboltaleik, eins og venjulega á sunnudagsmorgnum. Stefán var að keppa en því miður töpuðu þeir óverðskuldað 3-2. Sigurmarkið var skorað á síðustu sekúndunum, eins og svo ótrúlega oft í leikjum hjá þeim í vetur. Eftir hádegi skrapp Jóhann aðeins í golf, en við Stefán vorum bara heima í tiltekt og þrifum o.þ.h. Á morgun ætla ég í skólann að byrja að undirbúa mig fyrir næstu önn sem hefst formlega á miðvikudaginn. Eins gott að skipuleggja ritgerðarskrifin betur en síðast og byrja bara strax. Gangi mér vel.

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl Bára mín, já gangi þér vel með allt varðandi námið :) Setti nýjar myndir á barnanets síðuna, Kristján Jakob fór á skíði í gær,gekk vel en hryllilega kalt! Nú kyngir niður snjónum hér fyrir austan. Bestu kveðjur til strákana og the Waldmanns. KV Helga Dögg

Nafnlaus sagði...

Sæl Bára Mjöll mín & co og gleðilegt árið ;)
ég sé að þú ert að komast í startholurnar á nýrri önn og undirbúa ritgerðar skrif, ég segi bara líka gangi þér svakalega vel - ég efast reyndar ekki um að þér geri það, dugnaðarforkur sem þú ert :)

Bestu kv. Kristbjörg & fjölskylda :)

Bára Mjöll sagði...

Takk stelpur mínar :) Já, nú er bara að bretta upp ermar og nota tímann vel! Bestu kveðjur til baka til Íslands úr mildu en þungbúnu veðri í Cambridge, þar sem spáð er roki og rigningu á morgun...

Nafnlaus sagði...

Hef heyrt að þessi sýning sé mjög fín á hverju ári. Hér snjóar og snjóar, gott fyrir okkur skíðafólkið. Þorrinn byrjar á föstudag og blótið verður víst ekki fyrr en helgina á eftir. Danni er kominn í nefndina. kveðjur til allra úr snjómuggunni á Seyðis.
Ólafía

Bára Mjöll sagði...

Já, ég heyrði vel látið af þessari sýningu á meðan ég var í fjarnáminu í KHÍ og því gaman að geta farið á hana. Sáum skíðamyndir af ykkur á síðu Kristjáns og Höskuldar og dauðöfunduðum ykkur. Góða skemmtun á þorrablótinu :)

Nafnlaus sagði...

Hey, takk fyrir dyggan stuðning í keppninni í gær, þökk sé þér og fleirum rústuðum við þessu... !! Svo er bara að vera dugleg að kíkja á bloggið og að sjálfsögðu að kvitta ;)

Nafnlaus sagði...

hæ, hó.
Gaman að sjá að Sandra og Arnþór gátu komið í heimsókn til ykkar. Við erum einmitt ennþá með gestina okkar en því miður fara þeir eftir 4 daga.

Bestu kveðjur úr steikjandi hita hér í Auckland,
Elva

Bára Mjöll sagði...

Verði þér að góðu Evert - ég get svarið það að þetta var í fyrsta skipti sem ég fer inn á bloggið þitt og hitti þá einmitt á þessa keppni!

Alveg sammála Elva, það er skemmtilegt að fá gesti en leiðinlegt þegar þeir fara aftur. En svona er lífið, við erum alltaf að heilsa og kveðja...