11.1.07

Sandra & Arnþór

Undanfarna viku hafa skötuhjúin Sandra og Arnþór heiðrað okkur með nærveru sinni. Það var ósköp gott að fá þau í heimsókn, en um tíma var tvísýnt hvort þau kæmust núna eða kannski ekki fyrr en í vor eða guð má vita hvenær. Sem betur fer gekk allt samkvæmt áætlun og það var bara yndislegt að hafa þau hérna. Því miður þurftu þau að kveðja í gær, en við tókum okkur ýmislegt fyrir hendur á meðan þau voru hér, t.d.
  • skoðuðum bæinn
  • fórum á kaffihús
  • kíktum í búðir
  • fórum á pöbb
  • borðuðum hangikjöt sem þau voru svo væn að koma með frá Íslandi
  • fórum í bíó og
  • út að borða með Nínu og þeim
  • ætluðum á safn en það var lokað
  • fórum til London og kynntum okkur neðanjarðarlestarkerfið þar mjög vel.
Meðfylgjandi mynd (afsakið hvað hún er stór, síðan harði diskurinn hrundi hef ég ekkert myndaforrit til að minnka myndir) er einmitt tekin í einum rúllustiganum á leið upp úr iðrum jarðar í London. Veðrið var því miður ekki upp á sitt besta, óþarflega hvasst og kalt þannig að við rétt kíktum á helstu staði eins og Piccadilly Circus, Oxford Street, Thames, Trafalgar Square, Big Ben og Covent Garden og vorum fljót niður í hlýjuna inn á milli. Sátum líka tvisvar á sama staðnum í Covent Garden og hresstum okkur með mat og drykk (aðallega drykk...) En vaxmyndasafnið bíður þar til næst. Takk innilega fyrir komuna krakkar mínir, vonandi getið þið komið aftur í vor eða sumar!

Nú tekur bara hversdagsleikinn við. Jóhann er reyndar löngu byrjaður að vinna eftir jólafríið og Stefán byrjaði í skólanum sl. mánudag, en nú verð ég að fara að byrja að undirbúa mig fyrir "Lent Term" sem byrjar í næstu viku. Lengsta jólafrí sem ég hef upplifað er sem sagt búið.

6 ummæli:

Thorarinn sagði...

Flott mynd!

IrfanView er frábært forrit til að sýsla með myndir og verðið er engin fyrirstaða...

Nafnlaus sagði...

Sælar, jæja gott að heyra frá ykkur. Amma spyr mig í hvert sinn sem ég heyri í henni hvort þú sért búin að skrifa eitthvað á bloggið þitt. Nú get ég lesið fyrir hana næst þegar þau kíkja upp í Hérað. Annars er allt gott héðan að frétta. Er búin að opna nýja heimasíðu fyrir strákana www.barnanet.is/kristjanoghoskuldur Endilega kíktu á það. Bið að heilsa körlunum þínum, kær kveðja Helga Dögg

Bára Mjöll sagði...

Takk Pálmi, þetta hljómar vel - ætla að kynna mér það nánar.

Sæl Helga mín, ég var búin að taka eftir nýju síðunni ykkar og var ekki í vandræðum með leyniorðið ;) Biðjum kærlega að heilsa ömmu þinni og afa og ykkur öllum.

sirrysif sagði...

Ohh... heppin þið að fá þau í heimsókn. Mig langar að fá Söndru í heimsókn.

Nafnlaus sagði...

Gleðilegt ár öllsömul. Það er alltaf gaman að kíkja á síðuna þína. Og gaman er að fá góða gesti frá Íslandi. Hafið það gott á nýju ári. Kveðja Alda.

Bára Mjöll sagði...

Já, það var æðislegt að fá þau í heimsókn. Bara verst að svo þurftu þau að fara aftur... en svona er lífið. Gleðilegt ár Alda mín, bestu kveðjur til þín og þinna.