
Tónleikar SigurRósar fyrir framan bláu kirkjuna voru algjörlega yfirnáttúrulegir. Hreint og beint magnaðir. Um það voru
allir viðstaddir sammála. Tónheimurinn sem þeir sköpuðu í þokunni var ótrúlega heillandi og seyðandi. Takk fyrir ógleymanlegt kvöld.
2 ummæli:
VÁÁÁÁÁÁ!!!
Smá flott mynd :) Það hefur greinilega verið alveg mögnuð stemmning þarna!
Tónleikarnir í Ásbyrgi voru líka alveg frábærir. Við tókum bara teppi með okkur og sátum í grasinu og hlustuðum á þá, alveg frábært.
Sjáumst eftir nokkra daga!
Stemmingin var frábær. Og þeir náðu öllum, líka þeim sem ekki höfðu verið hrifnir af hljómsveitinni fram að þessu. Sjáumst!
Skrifa ummæli