1.8.06

42 Causewayside

Er einmitt nýja heimilisfangið okkar í Cambridge! Eða nákvæmlega svona:
42 Causewayside,
Fen Causeway
Cambridge CB3 9HD
England
Ég var svo heppin að fá íbúðina sem mér leist best á og þakka ég það alfarið því að ég var á staðnum og gat hitt fólkið á leigumiðlun háskólans, sem á íbúðina og gat skoðað hana. Hún er á þriðju hæð til vinstri og er á alveg frábærum stað við ána eins og sést á næstu mynd sem er tekin hinum megin frá. Stutt í allt; miðbæinn, til Nínu og Paul, sveitina, skólann minn og vonandi skólann hans Stefáns. Við vitum ekki enn nákvæmlega í hvaða skóla hann fer, við gátum ekki sótt um fyrir hann fyrr en við vorum búin að fá heimilisfang og það tekur alltaf einhvern tíma að afgreiða umsóknina. En Parkside Community College, skólinn sem við vildum helst að hann færi í, er hverfisskólinn hans svo vonandi fær hann inngöngu þar.

Verð að láta fylgja með eina mynd af Söndru hjá sólblómunum hans Pauls, en þau voru einmitt að byrja að springa út daginn sem við fengum íbúðina.

En nú þarf ég að halda áfram að pakka, rétt rúmar tvær vikur í brottför...

Engin ummæli: