16.8.06

Netföng - virk og óvirk

Eftir hádegi í dag ætlum við í Símabúðina á Egilsstöðum til að láta heimilissímanúmerið okkar í geymslu á meðan við erum í burtu. Það þýðir að við verðum ekki með Internetið, ekkert adsl-sjónvarp og að Símnet-netföngin okkar (baram@simnet.is og joistebb@simnet.is) verða óvirk. Við verðum eitthvað áfram með íslensku gsm númerin okkar, en ætli við fáum okkur ekki ensk númer þegar við erum komin út og einhvern svona Internet/sjónvarpspakka. Það verður samt varla fyrr en í kringum mánaðamótin eftir cirka tvær vikur.

Við getum samt eitthvað tékkað á tölvupóstinum, þ.e.a.s. á þeim netföngum sem enn verða virk. Mín eru þessi:
bmjons@gmail.com
bmj@skolar.sfk.is og
bara_mjoll@msn.com.

Stefán er með erkez27@gmail.com.

En það er verra hjá Jóhanni, hann verður þá bara með joistebb@visir.is sem virðist vera eitthvað bilað, en ég er búin að bjóða honum gmail þannig að ætli hann verði þá ekki með joistebb@gmail.com ef hann þiggur það.

Við verðum vonandi í sambandi þó við verðum aðeins lengra í burtu næsta árið og svo verðum við komin heim aftur áður en við vitum af! Hafið það gott og farið vel með ykkur á meðan.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

jæja, nú í þessum skrifuðu orðum eru þið einhvers staðar að sigla milli Ísland og Færeyja. Ég óska ykkur góðrar ferðar og vona að koffín-sjóveikitöflurnar virki vel :)

Adios!

Björk Helle sagði...

Sæl Mín kæra!

Hef verið so busy og gleymt að fylgjast með....en verðum í sambandi... þetta á eftir að verða ævintýralegt hjá ykkur. Gangi ykkur vel!

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ
Ég er nú bara að athuga hvort eitthvað væri að frétta af ykkur. Vonandi gekk sjóferðin vel og bara vonandi gengur allt vel hjá ykkur. Við fylgjumst með ykkur :) Bestu kveðjur frá Egilsstöðum Helga Dögg og strákarnir

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ
Ég er nú bara að athuga hvort eitthvað væri að frétta af ykkur. Vonandi gekk sjóferðin vel og bara vonandi gengur allt vel hjá ykkur. Við fylgjumst með ykkur :) Bestu kveðjur frá Egilsstöðum Helga Dögg og strákarnir

Bára Mjöll sagði...

Ferdin gekk mjog vel og komu koffín-sjóveikitoflurnar ad gódum notum, tó ekki hafi nú verid vont í sjóinn. Núna erum vid ad bída eftir ad fá íbúdina okkar, en vonandi getum vid flutt inn á morgun.

Bestu kvedjur frá Cambridge :)

Nafnlaus sagði...

Gott mál, bestu kveðjur úr Mývatnssveit,
Hannes

Nafnlaus sagði...

Gott að heyra að allt gekk vel. kveðjur frá Seyðis
Ólafía