
Óskaplega fallegur dagur í dag. Sól og 17-18 stiga hiti, en nokkuð stíf vestanátt. Við hjónin erum bara tvö heima í rólegheitum því einkasonurinn er á keppnisferðalagi norður í landi og kemur ekki heim fyrr en á morgun. Jóhann er að horfa á fótboltann (hvað annað) og ég er á leið út í garð að klára að setja niður sumarblómin.

Nú er farið að líða óþarflega nálægt brottfarardegi hjá okkur því eiginlega má segja að allt sé ófrágengið enn þá. Við höfum 6 og hálfa viku til að hnýta alla lausa enda og ég segi "don't panic" við sjálfa mig mörgum sinnum á dag. Húsið okkar var auglýst
til sölu síðasta fimmtudag, en ef við fáum ekki viðbrögð fljótlega þá förum við að undirbúa það fyrir leigu. Mála uppi og svoleiðis.
Svo er bíllinn okkar líka til sölu (þessi blágræni) - tilboð óskast.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli