Úps, það er komið hádegi og ég er búin að vera í allan morgun að lesa blogg. Ætlaði bara aðeins að tékka á póstinum mínum... En komm on, ég er í sumarfríi!
27.6.06
Sumarfrí
Nú er ég búin að vera í "sumarfríi" síðan 16. júní og er enn að berjast við að reyna að klára allt sem ég ætlaði að vera búin með áður en ég færi í frí. Það gengur samt þokkalega og ég er að verða langt komin. Í síðustu viku fóru reyndar 2 dagar í námskeið sem hét Myndlist - vídeógerð. Mjög, mjög skemmtilegt. Ég gæti alveg hugsað mér að gerast vídeólistakona. Það væri örugglega gaman.
Æfði mig smá á laugardaginn þegar við fórum upp að Fardagafossi hérna hinum megin í heiðinni. Ég var nefnilega enn með upptökuvél skólans að láni og tók upp alla ferðina frá a til ö. (Sleppti því samt að sýna rispuna og marið sem ég fékk á fótlegginn þegar ég steig ofan í gjótu á bak við fossinn. Var sko enn með sólgleraugun, en það var úði og mér sýndist þetta vera steinn). Mæli eindregið með ferð þarna uppeftir, tekur ekki nema klukkutíma frá veginum. Mjög falleg og þægileg gönguleið. Hugsa sér að við vorum að fara þetta í fyrsta sinn - nema Stefán reyndar, hann hafði farið einu sinni áður með skólanum.
Úps, það er komið hádegi og ég er búin að vera í allan morgun að lesa blogg. Ætlaði bara aðeins að tékka á póstinum mínum... En komm on, ég er í sumarfríi!
Úps, það er komið hádegi og ég er búin að vera í allan morgun að lesa blogg. Ætlaði bara aðeins að tékka á póstinum mínum... En komm on, ég er í sumarfríi!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


2 ummæli:
Sæl og til hamingju með Söndru! Við erum í góðum málum andlega séð :-)
Já, það má nú segja. Takk fyrir og sömuleiðis til hamingju með þínar!
Skrifa ummæli