Í gær gáfum við okkur samt tíma til að halda upp á 69 ára brúðkaupsafmæli ömmu og afa á Bjargi. Býsna stór hópur afkomenda kom saman suður í skógargirðingu eftir að hafa farið með blómaskreytingu niður í kirkjugarð. Var þetta hin ljúfasta og besta stund með glæsilegum kaffiveitingum. Amma var vön að hafa kaffi og kökur sunnan við hús þennan dag, 17. júlí og okkur finnst skemmtilegt að viðhalda þeim sið.
Á morgun ætla ég síðan að leggja land undir fót og liggur leiðin suður um heiðar og út til Englands. Við Sandra ætlum að fara saman í vikuferð til Cambridge að undirbúa jarðveginn fyrir veturinn. Það verður hin skemmtilegasta ferð er ég viss um. Meira um hana síðar.


1 ummæli:
Bjargvættir !
Skrifa ummæli