11.7.06

Skírn, brúðkaup og Kárahnjúkar

Helgin var bæði viðburðarík og skemmtileg. Á laugardaginn var okkur boðið í skírn upp í Fellabæ til Helgu Daggar og Ása. Þegar athöfnin hófst í litlu, sætu sóknarkirkjunni þeirra, Áskirkju, kom í ljós að þau höfðu ákveðið að gifta sig í leiðinni! Mjög fáir vissu um þetta og kom það því flestum viðstöddum skemmtilega á óvart. Litli maðurinn fékk svo nafnið Höskuldur Már sem á einkar vel við hann. Á eftir var glæsileg veisla heima hjá þeim nýgiftu, þar sem boðið var upp á kampavín og dýrindis veitingar; grillað lambalæri og tertur í eftirrétt. Virkilega skemmtilegt og vel heppnað. Því miður gleymdum við myndavélinni heima, en Stefán tók þessa mynd á símann sinn.

Daginn eftir vorum við snemma á fótum því við ætluðum í ferðalag upp að Kárahnjúkum. Á leiðinni var komið við í sumarbústaðnum hjá tengdó þar sem við fengum dýrindis morgunkaffi. Svo keyrðum við sem leið lá upp á hálendið þar sem virkjunarframkvæmdir standa sem hæst. Þar er mikið um að vera, svo ég segi ekki meira. Að þessu sinni var myndavélin með í för en nú reyndist batteríið vera búið! Aftur kom Stefán til bjargar með símann sinn og tók hann myndina af okkur Jóhanni á útsýnisstaðnum fyrir ofan stíflurnar. Þaðan keyrðum við yfir brúna vestur yfir Jökulsá, fram hjá Kárahnjúkaþorpi og áfram niður að Brú í Jökuldal. Við vorum síðan komin heim vel tímanlega fyrir úrslitaleikinn í HM.

Að lokum má nefna að í gær ákváðum við að leigja Íslenskri orkuvirkjun efri hæðina í húsinu okkar í rúmt ár eða út september á næsta ári. Við erum ekki eins ákveðin í að selja húsið eins og við vorum en bíllinn okkar góði er enn til sölu. Hefur ekki einhver áhuga á Subaru í ótrúlega góðu ástandi miðað við aldur og fyrri störf? Aðeins 250 þúsund...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sælar, takk kærlega fyrir síðast, fyrir skírnargjöfina og bara fyrir að hafa verið með okkar á laugardaginn. Ég las að þið hafið átt góða ferð upp á Kárahnjúka og glöð að heyra að þið séuð hætt við að selja húsið. Var einmitt að segja við mömmu í gær þegar við löbbuðum upp Brattahlíðina að það væri nú skrýtið að koma ekki inn í húsið aftur. Kveðja Helga Dögg

Bára Mjöll sagði...

Bara innilega til hamingju með allt saman Helga mín, þetta var alveg yndislegt. Við erum nú kannski ekki alveg hætt við að selja, ef við fáum mjög gott tilboð þá ætlum við að skoða það. En Danni verður áfram hér á neðri hæðinni í vetur svo þú getur alltaf komið og heimsótt hann á meðan við erum í burtu!