Nú er gaman. Ég var áðan úti á stétt að athuga með þvottinn, leit upp og horfðist þá beint í augu við sólina! Hún hefur ekki sést hér síðan í október á síðasta ári og var því orðin langþráð. Mér finnst það alltaf vera heilmikið þrekvirki að þrauka þessa fjóra mánuði sem við sjáum ekki sólina hér á Seyðisfirði. Hugsið ykkur fjóra mánuði! Þessu ber að fagna og sit ég nú við borðstofuborðið, drekk kaffi úr sólgulum bolla og borða súkkulaðihjúpað Oreo kex með. Mmmm, það er ekki dónalegt. Reyndar var ég búin að sjá sólina niðri í skóla fyrr í vikunni, en það tekur hana nokkra daga að ná hingað upp í hlíðina.
Annars er ég alein heima; Stefán dreif sig upp í fjall á skíði (já, það er enn dálítill snjór) en Jóhann fór inn á golfvöll að slá nokkrar kúlur. Og nú þarf ég að fara að huga að mínu áramótaheiti sem var að byrja í golfi á árinu... ég skil nú ekkert í því að mér var ekki boðið með... Jæja, ég var víst búin að segja að ég þyrfti að fara að vinna í námsmatinu. Það hefur verið mjög mikið að gera hjá mér eftir að ég náði mér eftir veikindin og sé ég fram á að næstu þrjár vikur verði áfram mjög annasamar, bæði í skólanum og á bókasafninu. Auk þess styttist í afmælið hans Stefáns og ýmislegt er á döfinni hjá kirkjukórnum. En maður þarf ekki að láta sér leiðast á meðan og ekki er verra að hafa sólina með sér, þá hlýtur allt að ganga svo miklu betur.


4 ummæli:
Til hamingju með sólina.
Nei ég get ekki ímyndað mér hvernig það er að vera án sólar í 4 mánuði. Við missum hana í nokkrar vikur hér. Hún sést aftur á nýjársdag ef það er bjart hérna við Hrafnagil.
Kveðja úr Eyjafirðinum
Kata
Takk Kata, þetta er allt annað líf.
Mér gengur mjög illa að venjast þessu langa sólarleysi, í Mývatnssveit hverfur sólin aldrei svo ég hef "bara" þurft að þola þetta síðustu 16 árin...!
Bestu kveðjur,
Bára Mjöll
Það er þetta með sextán árin. Er orðið svona langt síðan við kláruðum kennó. Ég ætti nú að vita það strákarnir eru að verða sextán!!
Úff hvað tíminn er fljótur að líða.
Sagði Kata
Skrifa ummæli