Núna þegar við erum bara þrjú, dugar okkur að búa til einfalda uppskrift og baka tvær kringlóttar pizzur í rafmagnspizzuofninum okkar. Fram að þessu hefur önnur alltaf verið með skinku og hin með pepperoni og ólífum (með smátilbrigðum) en nú hefur verið óskað eftir því að skinkupizzan verði framvegis líka með pepperoni. Að sjálfsögðu verður orðið við því. En svona er sem sagt maturinn hjá okkur flest laugardagskvöld.
Við vorum að vinna í skíðasjoppunni uppi í fjalli í dag. Það var nú heldur rólegt þó veðrið væri alveg frábært, sól og blíða. Að vísu var þokan ekki langt undan og snjórinn í minna lagi, en það var búið að ýta honum til svo hægt væri að renna sér og sólin náði yfirleitt að halda þokunni í skefjum. Synd að ekki skyldu fleiri drífa sig í Stafdal, skíðasvæði fræga fólksins - og það var meira að segja frítt í lyftuna í dag fyrir skurðlækna!
Þessi vika var dálítið strembin í vinnunni, en okkur tókst að klára spurningakeppnina og opna bókamarkað á bókasafninu, sem var vel af sér vikið. Um næstu helgi er svo stefnan að skreppa suður til að fara á bókamarkaðinn í Perlunni og jafnvel að reka aðeins nefið inn á UT-ráðstefnuna í leiðinni.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli